Körfubolti

Nýr leik­maður Tinda­stóls féll á lyfja­prófi þegar hann spilaði í G-deild NBA

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stólarnir eru að safna liði fyrir næsta tímabili og Jalen Adaway verður bandarískur leikmaður þeirra í vetur.
Stólarnir eru að safna liði fyrir næsta tímabili og Jalen Adaway verður bandarískur leikmaður þeirra í vetur. tindastóll

Jalen Adaway, nýr bandarískur leikmaður Tindastóls, var dæmdur í ársbann fyrir að falla á lyfjaprófi þegar hann lék í G-deild NBA.

Tindastóll greindi í gær frá því að félagið hefði samið við Adaway um að leika með því á næsta tímabili.

Adaway, sem er 28 ára bakvörður, hefur komið víða við eftir að hann útskrifaðist úr háskóla.

Hann var ekki valinn í nýliðavali NBA 2022 en lék Miami Heat í Sumardeild NBA það ár. 

Adaway lék síðan með Austin Spurs, liði San Antonio Spurs, í G-deildinni sem er eins konar þróunardeild NBA.

Í apríl 2023 var greint frá því að Adaway hefði verið rekinn úr G-deildinni eftir að hafa gerst sekur um brot á lyfjareglum hennar. Samkvæmt reglum G-deildarinnar var ekki gefið upp hvers eðlis brot Adaways var.

Adaway hélt í kjölfarið til Slóvakíu þar sem hann átti góðu gengi að fagna og varð meistari með Patrioti Levice.

Adaway hefur einnig leikið í Kanada, Mexíkó og nú síðast í Argentínu. Þá sneri hann aftur í G-deildina tímabilið 2024-25 þegar hann lék með San Diego Clippers. Ári eftir að hafa verið dæmdur í bannið vegna lyfjamisferlisins hafði hann möguleika á að sækja um endurheimt leikheimildar og sú beiðni hans var samþykkt.

Tindastóll komst í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn á síðasta tímabili en tapaði fyrir Grindavík, 3-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×