Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Agnar Már Másson skrifar 27. júlí 2026 14:14 JS Yamagiri er úr flota japanska sjóhersins en liggur nú við akkeri í Faxaflóa. Vísir/Lýður Liðsmenn úr æfingaflota japanska sjóhersins eru komnir til Íslands en sjóliðar af skipinu munu halda tónleka á torginu fyrir framan Hörpu á miðvikudag.
Japanskt herskip að nafni Yamagiri liggur við akkeri í Faxaflóa um þessar mundir. Skipið er hér á vegum æfingaflota japanska sjávarsjálfsvarnarliðsins, sem er í fyrsta sinn kominn til Reykjavíkur. Heimsóknin er hluti af þjálfunarsiglingu um heiminn, þar sem nýútskrifaðir yfirmenn sjávarvarnarliðsins eiga að öðlast reynslu á sjó til að búa sig undir leiðtogahlutverk framtíðarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu frá japanska sendiráðinu. Í tengslum við heimsóknina mun hljómsveit sjávarvararliðsins, sem er sögð skipuð afar færum tónlistarmönnum, halda sérstaka tónleika fyrir almenning. Japanska sendiráðið stendur fyrir viðburðinum en hljómsveitin er skipuð fimmtán liðsmönnum úr sex hljómsveitum innan japanska hersins. Hljómsveitin er á vegum japanska sjóhersins.Japanska sendiráðið Tónleikarnir verða við Hörputorg klukkan 13.30 á miðvikudag. Á vef Hörpu segir að á dagskránni verði um fimmtíu mínútna fjölbreytt og kraftmikil tónleikadagskrá, þar á meðal hefðbundinn japanskur taikó-trommuleikur og blásarasveitartónlist. Þá verði flutt fjölbreytt úrval tónlistar, allt frá alþjóðlegri tónlist og kvikmyndatónlist til japanskra dægurlaga og tónlistar úr japönskum teiknimyndum. JS Yamagiri er úr flota japanska sjóhersins en liggur nú við akkeri í Faxaflóa.Vísir/Lýður Á þessu ári eru sjötíu ár liðin frá stofnun stjórnmálasambands Japans og Íslands. „Í þeim anda er markmið tónleikanna að fagna vináttu og gagnkvæmum skilningi þjóðanna tveggja í gegnum tónlist,“ segir í dagskrá Hörpu.
Tónlist Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Japan Harpa Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Fleiri fréttir Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Sjá meira