Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Árni Sæberg og Jón Þór Stefánsson skrifa 30. júlí 2026 08:02 Gabríel Douane Boama við aðalmeðferð í héraðsdómi 2023. Gabríel Douane Boama, sem ítrekað hefur komist í kast við lögin undanfarin ár, og fimm aðrir karlmenn hafa verið sýknaður af ákæru um sérstaklega hættulega líkamsárás, húsbrot og eignarspjöll.
Héraðdómur Reykjavíkur kvað upp dóm þess efnis á mánudag. Sigurður Ólafsson, saksóknari hjá Héraðssaksóknara staðfestir niðurstöðu dómsins í svari til fréttastofu. Hann segir að ekki liggi fyrir hvort málinu verði áfrýjað, en ákvörðun um slíkt er í höndum Ríkissaksóknara. Hinir ákærðu voru sextán til nítján ára gamlir þegar meint árás var sögð hafa verið framin árið 2021, en mikill dráttur var á málinu, og því þeir nokkuð eldri í dag. Sagðir hafa beitt hömrum og hnífum Í ákæru á hendur mönnunum sex sagði að þeir hafi verið ákærðir fyrir að hafa aðfaranótt laugardags í september 2021 ruðst í heimildarleysi inn í íbúð í húsi við Holtagerði í Kópavogi og veist þar með ofbeldi að fjórum mönnum sem þar voru staddir. Sexmenningarnir hafi slegið og sparkað í höfuð hinna fjögurra víðs vegar um líkama þeirra og einnig veist að þeim með hættulegum vopnum og bareflum, þar á meðal hömrum og hnífum. Þar að auki hafi þeir valdið tjóni á húsnæðinu, meðal annars með því að brjóta gler í útidyrahurð, þannig að glerbrot féllu yfir og slösuðu þá sem fyrir innan voru, og skemmdu innihurð. Samkvæmt ákærunni hlutu þeir fjórir, sem áttu að hafa orðið fyrir meintu árásinni, ýmsa áverka. Unglingapartí fór úr böndunum Aðdragandi þessara meintu atvika, samkvæmt umfjöllun DV, var sá að ungmenni höfðu verið samankomin í áðurnefndu húsi í Holtagerði í Kópavogi. Einum pilti hafi verið vísað burtu, en skömmu síðar hafi hann komið aftur með hópi manna sem komu á nokkrum bílum. Það var umræddur hópur, sem líkt og áður segir var sýknaður. Jafnframt greindi DV frá því að við aðalmeðferð málsins hafi sakborningarnir ýmist neitað að tjá sig um málið, eða ekki sagst muna eftir því. Sem áður segir voru mennirnir sex sýknaðir af ákærunni. Samkvæmt heimildum fréttastofu byggðist sýknan einfaldlega á því að ekki voru nægar sannanir fyrir hendi um að mennirnir hafi framið meinta árás.
Dómsmál Kópavogur Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Sjá meira