Rosenborgarar Freys óstöðvandi Valur Páll Eiríksson skrifar 27. júlí 2026 18:59 Freyr Alexandersson stýrði Rosenborg til þriðja sigursins í röð. Liðið er með fullt hús og markatöluna 10-0 undir hans stjórn. Getty/Craig Foy Rosenborg vann þriðja sigur liðsins í röð í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta undir stjórn Freys Alexanderssonar. 4-0 sigur vannst á Fredrikstad í Þrándheimi.
Freyr tók við Rosenborg fyrir rúmum mánuði síðan í miðju HM-hléi í Noregi. Hann hafði stýrt Rosenborg í tveimur deildarleikjum fyrir leik kvöldsins; 3-0 sigur á Kristiansund og 3-0 sigur á Start. Þrátt fyrir góða byrjun Íslendingsins í Þrándheimi stóðu stuðningsmenn liðsins að mótmælum á leik kvöldsins. Honum var frestað vegna æfingaleiks Rosenborgar við Manchester United á Lerkendal-vellinum á föstudaginn var. Sá leikur tapaðist að vísu 5-0 fyrir enska stórveldinu en þrátt fyrir það bakslag, og mótmæli kvöldsins, hélt Rosenborg uppteknum hætti og vann þriðja sigurinn í röð, í þetta sinn 4-0. Vinstri bakvörðurinn Adrian Pereira kom Rosenborg yfir gegn Fredrikstad í kvöld eftir aðeins tíu mínútna leik og Emil Ceide skoraði annað markið þremur mínútum síðar. Eftir þessa góðu byrjun var sigur Rosenborgar aldrei í hættu og liðið stýrði ferðinni frá A til Ö. Alsírski framherjinn Amin Chiakha skoraði þriðja markið á 78. mínútu áður en Iver Fossum innsiglaði 4-0 sigurinn undir lok leiks. Rosenborg er því með fullt hús undir stjórn Freys með þrjá sigra og markatöluna 10-0. Rosenborg var við botn norsku deildarinnar með níu stig eftir ellefu leiki þegar Freyr tók við en hefur tvöfaldað þann fjölda, er með 18 stig í 9. sæti af 16 liðum, með markatöluna 19-18.
Norski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Sjá meira