Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar 29. júlí 2026 14:30 Margir eru smeykir við hið óþekkta. Óttinn er áróðursbragð hjá þeim sem vilja vinna gegn tilteknu málefni, sérstaklega þegar almenningur þekkir lítið til þess. Þegar bent er á að þeir fari ekki með rétt mál er sagt: „En það gæti gerst einhvern tíma í framtíðinni!“ Upplýsingaóreiða er herbragð. Henni er óspart verið beitt af þeim sem eru andvígir aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hér á eftir leiðrétti ég nokkrar af þeim fullyrðingum sem hæst hafa flogið. 1. Ísland mun missa yfirráð yfir fiskimiðunum. Sú fullyrðing fær ekki staðist. Innan Evrópusambandsins gildir svonefnd regla um hlutfallslegan stöðugleika. Hún felur í sér að skipting veiðiheimilda byggist á þeirri veiðireynslu sem ríki hafa á viðkomandi hafsvæðum. Undanfarna hálfa öld hafa erlend ríki ekki stundað veiðar innan íslenskrar lögsögu nema á grundvelli samninga við Ísland. Íslendingar hafa því einir þá veiðireynslu sem máli skiptir á Íslandsmiðum. Það má því fullyrða að íslenskar veiðiheimildir héldust óskertar við aðild að Evrópusambandinu. Því er stundum svarað að hægt væri að breyta reglunni. Fræðilega er auðvitað hægt að breyta reglum, en hvers vegna ættu aðildarríkin að vilja kollvarpa kerfi sem þau hafa sjálf byggt réttindi sín á? Ísland myndi auk þess taka þátt í ákvörðunum sambandsins og gæti ekki verið knúið til að samþykkja hvaða breytingu sem er án aðkomu sinnar. Til að taka af allan vafa væri engu að síður eðlilegt að festa sérstaklega í aðildarsamningi Íslands hvernig farið yrði með veiðiheimildir á Íslandsmiðum. 2. Ungt fólk frá Íslandi verður sent í Evrópuherinn. Staðreyndin er sú að enginn sameiginlegur Evrópuher er til. Aðildarríki Evrópusambandsins ráða hvert yfir sínum eigin herafla og hann lýtur ekki einni sameiginlegri herstjórn Evrópusambandsins. Flest ríki sambandsins eru einnig aðilar að Atlantshafsbandalaginu, en þar er heldur ekki um að ræða einn sameiginlegan her sem getur kvatt borgara einstakra ríkja til þjónustu án ákvörðunar stjórnvalda þeirra. Þá svara talsmenn óttans því að sameiginlegur Evrópuher gæti orðið til einhvern tíma í framtíðinni. Þar er enn spilað á hræðslu við hið óþekkta. Aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi ekki fela í sér herskyldu eða heimild erlendra stjórnvalda til að kalla íslensk ungmenni til herþjónustu. 3. Íslendingar tapa lífeyrissparnaði sínum við inngöngu í Evrópusambandið. Þessi fullyrðing er fráleit. Hvert aðildarríki Evrópusambandsins hefur sitt eigið lífeyriskerfi. Mörg ríkjanna styðjast fyrst og fremst við gegnumstreymiskerfi, en önnur hafa byggt upp sjóðsöfnun að meira eða minna leyti eins og Ísland. Alþjóðlegur samanburður á lífeyriskerfum sem gerður er af ráðgjafarfyrirtækinu Mercer, hefur árum saman skipað Íslandi í hóp þeirra þriggja ríkja sem búa við traustustu lífeyriskerfin. Danmörk og Holland hafa einnig verið ofarlega á þeim lista. Ástæðan fyrir því að lífeyriskerfi Evrópuríkja eru ólík er einföld: Evrópusambandið rekur ekki eitt sameiginlegt lífeyriskerfi. Aðildarríkin bera sjálf ábyrgð á uppbyggingu og fjármögnun sinna kerfa. Því hefur þó verið haldið fram að Ísland gæti verið neytt til að nota lífeyrissparnað landsmanna til að greiða lífeyrisskuldbindingar annarra Evrópuríkja. Engin stoð er fyrir slíkri fullyrðingu. Aðild að Evrópusambandinu felur ekki í sér að eitt ríki yfirtaki lífeyrisskuldbindingar annars ríkis eða að unnt sé að gera upptæka eign íslenskra lífeyrissjóða til að greiða eftirlaun erlendis. 4. Ísland mun glata fullveldi sínu. Við þurfum ekki annað en að horfa til Danmerkur, Svíþjóðar, Hollands, Frakklands, Ítalíu og Spánar, ríkja sem við þekkjum vel og þúsundir Íslendinga heimsækja á hverju ári. Enginn efast í raun um að þeirra þjóðir séu frjálsar og fullvalda. Aðild að Evrópusambandinu felur vissulega í sér að ríki ákveða að fara sameiginlega með tiltekin verkefni og lúta sameiginlegum reglum á afmörkuðum sviðum. Það er gert með samningum sem fullvalda ríki samþykkja sjálf. Aðildarríkin eiga fulltrúa í stofnunum sambandsins, taka þátt í lagasetningu þess og geta haft bein áhrif á ákvarðanir, ákvarðanir sem Íslendingar þurfa nú þegar að innleiða að verulegu leyti vegna EES-samningsins. Ísland hefur nú þegar framselt vald á ýmsum sviðum með alþjóðlegum samningum, meðal annars innan EES og Atlantshafsbandalagsins. Munurinn er sá að innan EES tökum við upp mikinn hluta löggjafar Evrópusambandsins án þess að hafa fulla aðkomu að stefnumótun og lokaákvörðunum. Spurningin er því ekki hvort Ísland eigi að deila einhverjum hluta ákvörðunarvalds síns með öðrum ríkjum. Það gerum við nú þegar. Spurningin er hvort við viljum áfram taka við reglum sem aðrir hafa mótað eða gerast fullgildur þátttakandi í mótun þeirra. Ísland yrði vissulega lítið land í hópi vinaþjóða líkt og í öðrum alþjóðasamtökum. Við ætlum okkur ekki að ganga í Evrópusambandið til þess að ná því undir okkar vald, en við hefðum áhrif langt umfram fólksfjölda. Klifað er á því að við hefðum aðeins 0,1% af atkvæðum í svonefndu ráðherraráði. Þá gleyma þeir neikvæðu því að í ráðherraráðinu gildir tvöföld regla um tillögur: a. Að minnsta kosti 55% aðildarríkja samþykkja hana, sem þýðir nú 15 af 27 ríkjum, og b. Þau ríki eru samanlagt með að minnsta kosti 65% íbúa ESB. Fari svo að Ísland gangi inn yrðu aðildarríkin 28 og 16 ríki þyrfti til þess að uppfylla reglu a. Því gætu 13 þjóðir fellt tillöguna, þrátt fyrir fólksfjöldann í þeim 15 ríkjum sem væru með. Við hefðum vissulega ekki neitunarvald, en værum með 3,6% vægi þegar að þeirri reglu kemur og gætum haft úrslitaáhrif með þjóðum sem væru sama sinnis. 5. Það er ekki um neitt að semja. Með Jái þann 29. ágúst eru örlög Íslands ráðin. Þessi fullyrðing kemur þeim spánskt fyrir sjónir sem muna tæplega þriggja ára samningalotu Íslands eftir 2009. Þá var ekki einu sinni byrjað að ræða ákveðin mikilvæg mál. Stæðist þessi fullyrðing væri engin ástæða til þess að hafa seinni atkvæðagreiðslu því allt væri þegar ljóst. Ég hygg að enginn neikvæðra myndi fallast á það. Niðurstaða Áróður sem byggist á því að eitthvað hræðilegt gæti hugsanlega gerst má ekki koma í stað málefnalegrar umræðu. Aðild að Evrópusambandinu á að meta út frá raunverulegum kostum og göllum, ekki tilbúnum ógnarmyndum um glötuð fiskimið, herskyldu, upptöku lífeyrissparnaðar eða endalok íslensks fullveldis. Mínar leiðréttingar munu ekki snúa þeim sem eru forhertir í sinni afstöðu og ekki hlusta á rök. En flest fólk vill hafa það sem sannara reynist. Með því að segja Já þann 29. ágúst fáum við öll betri tíma til þess að kynna okkur Evrópusambandið miklu betur. Atkvæðagreiðslan snýst nefnilega bara um að ganga til samninga en ekki inngöngu í sambandið. Um hana yrðu greidd atkvæði síðar, ef samningar nást. Kannski kemur í ljós að þeir neikvæðu sjá í raun og veru fyrir óorðna hluti og aðildarsamningur verður óásættanlegur. Mér finnst það ólíklegt. Hitt er líklegra, að mjög verði reynt að koma til móts við íslensk sjónarmið, ekki síst á þeim sviðum þar sem Evrópusambandsþjóðirnar hafa engu að tapa á því að fallast á óbreytt ástand. Já þýðir að við höldum dyrunum opnum. Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Benedikt Jóhannesson Mest lesið Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Takk Inga Sæland Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar Skoðun Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar Skoðun Erum við Íslendingar hópheimskir? Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun 200 milljarðar – og við getum gert betur Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leiðin út úr PISA-lægðinni Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæfan sem við tökum ekki eftir Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun