Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. júlí 2026 14:10 haukar- ÍR Haukar - ÍR mættust í úrslitum Poweraid bikarins í handbolta. vísir/anton Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum átján ára og yngri vann stórsigur á Svartfjallalandi, 39-25, í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í Serbíu í dag.
Talsverðar væntingar eru gerðar til íslenska liðsins en uppistaða þess er gríðarlega öflugur 2008-árgangur sem hefur náð góðum árangri á undanförnum árum. Íslendingar gáfu Svartfellingum engin grið í leik dagsins. Ísland leiddi allan tímann og vann að lokum fjórtán marka sigur, 39-25. Eftir að Svartfjallaland jafnaði metin í 7-7 kom frábær kafli hjá Íslandi sem skoraði sjö mörk í röð og komst í 14-7. Níu mörkum munaði svo á liðunum í hálfleik, 19-10. Því forskoti ógnuðu Svartfellingar aldrei. Þeir minnkuðu muninn í 26-20 eftir 3-1 kafla en þá stigu Íslendingar aftur á bensíngjöfina, skoruðu þrjú mörk í röð, endurheimtu níu marka forskotið sem þeir höfðu í hálfleik og juku svo forskotið á lokakaflanum. Freyr Aronsson skoraði tíu mörk fyrir íslenska liðið. Alex Unnar Hallgrímsson var með sjö mörk og Logi Finnsson sex. Tíu leikmenn Íslands komust á blað í leiknum. Auk Íslands og Svartfjallalands eru Ungverjaland og Sviss í D-riðli Evrópumótsins. Næsti leikur Íslendinga er gegn Ungverjum á morgun.
Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti FH - Þróttur | Mikilvægt fyrir titilbaráttuna að fá sigur Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira