Golf

Vann Ein­vígið á Nesinu annað árið í röð

Andri Broddason skrifar
Tómas Eiríksson Hjaltested, frá GR, hafði betur í Envíginu á Nesinu annað árið í röð. 
Tómas Eiríksson Hjaltested, frá GR, hafði betur í Envíginu á Nesinu annað árið í röð.  Nesklúbburinn

Tómas Eiríksson Hjaltested frá Golfklúbbnum í Reykjavík vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð. Hann vann Guðrúnu Brá Björnsdóttur á lokaholunni.

Einvígið á Nesinu er árlegt góðgerðamót þar sem mörgum af bestu kylfingum landsins er boðið að spila. Í ár var spilað til styrktar Bergsins sem eru samtök sem styðja við andlega líðan ungs fólks.

Tíu kylfingar mættu til leiks á Seltjarnarnesið í dag en kylfingarnir falla úr leik hver á fætur öðrum. Á fyrstu holunni fellur kylfingurinn úr leik sem er lengst frá eftir þrjú högg, á annarri holu fellur kylfingurinn úr leik sem er fjærst holunni eftir tvö högg og svo fellur kylfingurinn sem fer holuna á flestum höggum úr leik.

Mikil spenna ríkti í Einvíginu en þegar hafið var leik á áttundu holu voru Gunnlaugur Árni Sveinsson, Tómas Eiríksson Hjaltested og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eftir. Þar datt Gunnlaugur Árni úr keppni og Guðrún Brá og Tómas mættust á úrslitaholunni.

Á lokaholunni skaut Guðrún Brá upphafshöggi sínu út fyrir endamörk vallarins og þurfti hún að taka því þriðja högg af teig. Þá var eftirleikurinn fyrir Tómas auðveldur og spilaði hann holuna öruggt og náði því að verja titilinn sinn í Einvíginu á Nesinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×