Viðskipti innlent

Matt­hildur María tekur við af Rikku við Hring­borð norðurslóða

Árni Sæberg skrifar
Matthildur María, til vinstri, og Friðrika Hjördís.
Matthildur María, til vinstri, og Friðrika Hjördís. Hringborð norðurslóða/Vísir

Matthildur María Rafnsdóttir, sem hefur undanfarin ár gegnt stöðu upplýsinga- og samskiptafulltrúa Hringborðs norðurslóða, hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþings Hringborðs norðurslóða af Friðriku Hjördísi Geirsdóttur, sem er betur þekkt sem Rikka.

Greint var frá brotthvarfi Rikku í gær en hún hafði gegnt starfinu frá árinu 2024.

Greint er frá ráðningu Matthildar Maríu í stöðuna á Facebooksíðu Hringborðs norðurslóða. Þar segir að hún stígi inn í nýtt hlutverk á spennandi tímum fyrir viðskiptaþingið, með aukinni áherslu á hringborðsumræður sem hannaðar eru til að hlúa að þýðingarmiklum umræðum milli viðskiptaforingja, fjárfesta, stefnumótenda og annarra lykilaðila á heimskautinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×