Farþegar elska lopapeysur Bjarki Sigurðsson skrifar 7. ágúst 2026 22:59 Ragnhildur Ingólfsdóttir er sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum á Akureyri. Vísir/Bjarki Sölubás Rauða krossins við Ráðhústorgið á Akureyri þar sem gestir og gangandi versla sér prjónaföt er gríðarlega vinsæll meðal ferðamanna. Sjálfboðaliðar sjá um að prjóna fötin og þvo.
Þegar stóru skemmtiferðaskipin mæta norður á Akureyri koma sjálfboðaliðar Rauða krossins sér fyrir við gamla Landsbankahúsið með alls konar prjónuð föt. Þótt úti séu átján gráður líkt og þegar fréttastofa leit við eru ferðamenn duglegir að versla. „Við erum að selja bæði nýprjónaðar peysur og notaðar. Húfur, vettlingar og sokkar. Þetta er mestallt nýtt,“ segir Ragnhildur Ingólfsdóttir, sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. Salan gangi vel en fötin koma ýmist frá sjálfboðaliðunum sjálfum eða fólki í nágrenninu sem prjónar og gefur Rauða krossinum til að selja. Ferðamennirnir, sem flestir eru erlendir en einhverjir íslenskir, verði ekki sviknir af því að versla peysu á básnum. Þetta eru engar túristapeysur, þetta er alvöru íslensk ull? „Þetta eru íslenskar handprjónaðar peysur,“ segir Ragnhildur. Fjölmargir sjálfboðaliðar taka þátt í starfi Rauða krossins á Akureyri. „Margir, margir sjálfboðaliðar, það eru flestir sjálfboðaliðar,“ segir Ragnhildur. Hvers vegna gefur þú þér tíma í eitthvað svona? „Mér finnst þetta gaman og þegar maður er kominn á aldur er gaman að hafa eitthvað að gera. Þetta gefur manni heilmikið,“ segir Ragnhildur.
Tíska og hönnun Akureyri Ferðaþjónusta Góðverk Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Sjá meira