„Var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég“ Árni Gísli Magnússon skrifar 7. ágúst 2026 21:04 Karen Hulda Hrafnsdóttir fagnar hér markinu sínu. Sýn Sport Karen Hulda Hrafnsdóttir, leikmaður Þór/KA, skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild í 2-0 sigri á Fram í 15. umferð Bestu deildar kvenna en leikið var á VÍS-vellinum á Akureyri.
Karen er aðeins 17 ára gömul og hefur spilað vel í miðvarðarstöðunni í sumar. „Bara mjög vel, það er náttúrulega geggjað að skora fyrsta markið og já, hver sigur er mjög mikilvægur.“ Þú skorar þitt fyrsta mark í Bestu deildinni í kvöld en er þetta einnig fyrsta markið þitt í öllum meistaraflokksbolta? „Já, ég held það, allavega í Bestu og það er mjög mikilvægt.“ Eftir nánari skoðun kom í ljós að Karen skoraði tvö mörk í 2. deild með Dalvík/Reyni á síðasta tímabili en markið í dag var vissulega hennar fyrsta í efstu deild. Karen skoraði fyrsta mark leiksins og var fengin til að lýsa sinni upplifun af markinu. „Þetta kemur náttúrulega úr aukaspyrnunni, svo fær Arna (Sif Ásgrímsdóttir) hann, svo man ég að ég var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég.“ Staðan var markalaus eftir bragðdaufan fyrri hálfleik en Þór/KA sýndi klærnar í þeim síðari. „Bara við þurfum að vinna. Við vorum miklu ákveðnari í seinni hálfleik, komum bara allar og vorum tilbúnar í að vinna.“ Þór/KA hefur ekki tapað heimaleik síðan 30. maí sem eru þá fjórir leikir í röð og hefur liðið náð í betri úrslit eftir erfiða byrjun. Karen fór yfir hvað hefur breyst innan liðsins síðan þá. „Við ákváðum gildi hjá okkur og mér finnst þau bara hafa hjálpað okkur mjög mikið. Hérna heima finnst mér það mest sjást og við erum bara mjög ákveðnar hérna heima finnst mér, bara með öllu fólkinu okkar og allt þetta.“ Undirritaður var forvitinn og vildi vita hver gildi liðsins væru sem setti Karen í erfiða stöðu. Hún andvarpaði áður en hún leitaði hjálpar liðsfélaga sinna sem fylgdust með viðtalinu. „Hildur, gildin okkar? Nú man ég þau ekki,“ kallaði Karen og svörin komu þótt smá djúpt hefði verið á þeim: „Hjarta, gleði, traust, eitt í viðbót, barátta,“ sagði Karen og var þakklát hjálpinni sem barst og hló dátt með liðsfélögunum að viðtali loknu.
Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Fram Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira