Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Jón Þór Stefánsson skrifar 7. ágúst 2026 22:36 Yorgen Fenech er ákærður fyrir aðild að morði á blaðakonunni Daphne Caruana Galizia. Vísir/AP Yorgen Fenech, erfingi Maltnesks hótel- spilavíta- og fasteignaveldis, mun hafa sagt vitorðsmanni sínum, leigubílstjóranum Melvin Theuma, að hann væri klár með kampavín meðan hann beið óþreyjufullur eftir því að leigumorðingjar á hans snærum dræpu blaðamanninn Daphne Caruana Galizia.
Þetta segir Theuma sem nú ber vitni gegn Fenech sem sætir ákæru vegna drápsins á Galizia, sem lést í bílasprengingu í október 2017. Bræðurnir George og Alfred Degiorgio, umræddir leigumorðingjar hlutu árið 2022 hvor um sig fjörutíu ára fangelsisdóma fyrir sinn þátt í málinu. Áður hafði Vince Muscat, þriðji morðinginn, hlotið fimmtán ára dóm í málinu, og í fyrra hlutu tveir vitorðsmenn einnig dóma. Nú er Fenech gefið að sök að hafa greitt Muscat og Degiorgio-bræðrunum 150 þúsund evrur, um 21 milljón krónur á núvirði, fyrir verknaðinn. Hann neitar sök. Guardian fjallar um málið. Stjörnuvitni Theuma er sagður hafa verið milliliður Fenech og morðingjanna þriggja. Ekki verður hægt að sækja hann til saka þar sem hann hefur gert samning við stjórnvöld um að bera vitni, í staðinn hlýtur hann vitnavernd. Hann mætti vera kallaður stjörnuvitni málsins Galizia var blaðamaður sem hafði meðal annars fjallað um Panamaskjölin og spillingarmál maltneskra stjórnmála- og embættismanna. Samkvæmt vitnisburði Theuma var ástæðan fyrir morðinu sú að Fenech vildi vernda frænda sinn, Raymond Fenech, sem er yfir fjölskyldufyrirtækinu. Þegar á leið hafi það breyst og Yorgen Fenech óttast að Galizia myndi fjalla um hann sjálfan. Vissi um einn sem vildi hana feiga Fyrir dómi í dag lýsti Theuma því þegar hann fékk þremenningana til að sinna verkinu. Hann hafi ekið leigubíl sínum að vöruhúsi við höfnina í bænum Marsa á Möltu þar sem þeir þrír dvöldu „Alfred steig um borð í leigubílinn minn og ég sagði honum: Ég veit um einhvern sem vill drepa Daphne Caruana Galizia,“ sagði Theuma „Hann spurði hvort viðkomandi væri reiðubúinn til þess að borga, og ég sagði: Já, af sjálfsögðu.“ Að sögn Theuma greindi hann morðingjunum þremur aldrei frá því hver hefði sent hann. Með burner-síma í Disneylandi Þremenningarnir hafi hlotið fyrirframgreiðslu upp á 30 þúsund evrur. Þá hafi Theuma verið gefinn sérstakur sími, svokallaðan burner-síma, til þess að vera í bandi við þá, sem og Fenech. Fenech hafi ætlast til þess að Theuma myndi ávallt vera með símann á sér, líka þegar hann færi erlendis, og það hafi hann gert. Þegar Theuma hafi verið að heimsækja Disneyland (ekki kemur fram í hvaða landi) hafi hann rætt við Fenech um málið. „Yorgen spurði mig alltaf með nokkurra daga millibili um hvenær þeir myndu drepa hana. Einu sinni, var hann á bátnum sínum og sendi mér skilaboð og sagðist vera að gera kampavínið klárt, ef svo skyldi vera að þeir myndu ljúka verkinu af,“ sagði Theuma. Að hans sögn varð Fenech sífellt meira og meira óþreyjufullur sem leið á. Á endanum, líkt og áður segir, var Galizia drepinn með bílasprengju.
Malta Erlend sakamál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira