Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar 8. ágúst 2026 09:32 Í dag fylkja þúsundir Íslendinga sér undir regnbogann í gleðigöngu til stuðnings réttindum hinsegin fólks í miðborg Reykjavíkur. Gleðigangan er fyrst og fremst gleðidagur og hátíð en hún er um leið mikilvæg áminning um að réttindi sem hafa unnist með áratugalangri baráttu eru ekki sjálfgefin. Við sjáum nú því miður alvarlega afturför í réttindum hinsegin fólks víða um heim. Fræjum fordóma og jafnvel haturs hefur markvisst verið sáð. Þegar orðræðan færist til breytast mörk um það sem þykir ásættanlegt að segja. Jafnvel hér á Íslandi þarf fólk að upplifa öryggisleysi. Orð skipta máli. Hatursfull og niðrandi orðræða skapar ótta og öryggisleysi og getur lagt grunn að alvarlegri brotum. Tjáningarfrelsi er ein af grunnstoðum lýðræðisins en það takmarkast af réttindum annarra, líkt og önnur mannréttindi. Stór skref á Íslandi Með samhentu átaki hefur Ísland stigið stór skref í réttindabaráttu hinsegin fólks á síðustu áratugum. Við erum í fremstu röð á heimsvísu þegar kemur að lagalegum réttindum hinsegin fólks. Það er árangur sem við eigum að vera stolt af. Samfélag sem tekur jafnréttismálum alvarlega er og vill vera í fararbroddi hvað varðar réttindi hinsegin fólks. Við verðum hins vegar að vera meðvituð um að hinsegin fólk finnur enn fyrir fordómum og verður enn fyrir misrétti. Við það getum við ekki sætt okkur. Og ég tek því sem er að gerast á alþjóðavettvangi hvað varðar réttindi hinsegin fólks alvarlega. Þegar við sjáum afturför víða um heim er enn mikilvægara að spyrna við, standa vörð um það sem hefur áunnist hér heima og halda áfram að sækja fram. Til hamingju með gleðigönguna Árangur síðustu áratuga sýnir hvað hægt er að gera þegar samfélag stendur saman. En árangurinn minnir okkur líka á að réttindi eru aldrei sjálfgefin. Þess vegna er Gleðigangan svo miklu meira en skemmtileg hátíð. Gleðigangan er sýnileg yfirlýsing um að á Íslandi viljum við tryggja að hinsegin fólk geti lifað frjálst, verið það sjálft og notið sömu virðingar, réttinda og öryggis og aðrir. Það er samfélagið sem við viljum standa fyrir. Og það er markmið stjórnvalda. Gleðilega gleðigöngu! Höfundur er dómsmálaráðherra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Hinsegin Mest lesið Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Sjá meira
Í dag fylkja þúsundir Íslendinga sér undir regnbogann í gleðigöngu til stuðnings réttindum hinsegin fólks í miðborg Reykjavíkur. Gleðigangan er fyrst og fremst gleðidagur og hátíð en hún er um leið mikilvæg áminning um að réttindi sem hafa unnist með áratugalangri baráttu eru ekki sjálfgefin. Við sjáum nú því miður alvarlega afturför í réttindum hinsegin fólks víða um heim. Fræjum fordóma og jafnvel haturs hefur markvisst verið sáð. Þegar orðræðan færist til breytast mörk um það sem þykir ásættanlegt að segja. Jafnvel hér á Íslandi þarf fólk að upplifa öryggisleysi. Orð skipta máli. Hatursfull og niðrandi orðræða skapar ótta og öryggisleysi og getur lagt grunn að alvarlegri brotum. Tjáningarfrelsi er ein af grunnstoðum lýðræðisins en það takmarkast af réttindum annarra, líkt og önnur mannréttindi. Stór skref á Íslandi Með samhentu átaki hefur Ísland stigið stór skref í réttindabaráttu hinsegin fólks á síðustu áratugum. Við erum í fremstu röð á heimsvísu þegar kemur að lagalegum réttindum hinsegin fólks. Það er árangur sem við eigum að vera stolt af. Samfélag sem tekur jafnréttismálum alvarlega er og vill vera í fararbroddi hvað varðar réttindi hinsegin fólks. Við verðum hins vegar að vera meðvituð um að hinsegin fólk finnur enn fyrir fordómum og verður enn fyrir misrétti. Við það getum við ekki sætt okkur. Og ég tek því sem er að gerast á alþjóðavettvangi hvað varðar réttindi hinsegin fólks alvarlega. Þegar við sjáum afturför víða um heim er enn mikilvægara að spyrna við, standa vörð um það sem hefur áunnist hér heima og halda áfram að sækja fram. Til hamingju með gleðigönguna Árangur síðustu áratuga sýnir hvað hægt er að gera þegar samfélag stendur saman. En árangurinn minnir okkur líka á að réttindi eru aldrei sjálfgefin. Þess vegna er Gleðigangan svo miklu meira en skemmtileg hátíð. Gleðigangan er sýnileg yfirlýsing um að á Íslandi viljum við tryggja að hinsegin fólk geti lifað frjálst, verið það sjálft og notið sömu virðingar, réttinda og öryggis og aðrir. Það er samfélagið sem við viljum standa fyrir. Og það er markmið stjórnvalda. Gleðilega gleðigöngu! Höfundur er dómsmálaráðherra
Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun