Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur og Bashar Murad skrifa 8. ágúst 2026 15:22 Undanfarin þrjú ár hefur stór hópur hinsegin fólks og aðstandenda hinsegin fólks safnast saman og gengið fyrir frjálsa Palestínu í Gleðigöngunni. Palestínsk systkini okkar, bæði hinsegin og ekki, ganga nú í gegnum hrottalegt þjóðarmorð af hendi Ísraels, sem er fjármagnað og vopnað af vestrænum stjórnvöldum. Listi yfir stríðsglæpi Ísraels og brot á alþjóðalögum er ískyggilega langur og staðfestur af fjölda virtra mannréttindasamtaka og stofnana á vegum Sameinuðu Þjóðanna. Fólki getur reynst torskilið að sjá tenginguna á milli réttindabaráttu hinsegin fólks og frelsisbaráttu Palestínu. Það er að mörgu leyti skiljanlegt, enda getur gleymst að gangan, sem á Íslandi er kennd við Gleði en á öðrum stöðum við Stolt, er pólitísk ganga sem á uppruna sinn í óeirðum og mótmælum hinsegin fólks. Hvernig tengist réttindabarátta hinsegin fólks og frelsisbarátta Palestínu? Hinsegin fólk er alls staðar. Við erum íslensk, fötluð, hvít, svört, arabísk, kristin, á flótta, múslimar, ung, gömul, palestínsk. Palestínskt hinsegin fólk hefur kallað eftir stuðningi hinsegin fólks um heim allan gegn þjóðarmorðinu sem nú stendur yfir og við svörum því kalli. En það er ekki eina tengingin. Grundvallarbarátta Pride-göngunnar er sú trú að allt fólk eigi að njóta frelsis, öryggis, sjálfsákvörðunarréttar og mannlegrar reisnar óháð því hvaða hópum þau tilheyra. Séu mannréttindi eins hóps virt að vettugi er það árás á þessa grundvallarbaráttu. Palestínufólk er myrt, fangelsað, pyntað og rekið af heimilum sínum vegna þess að það er palestínskt. Þess vegna göngum við fyrir frjálsa Palestínu. En eru hinsegin réttindi í Palestínu ekki hræðileg? Í fyrsta lagi þá þarf ekki að samþykkja allt sem stjórnvöld eða samfélög á ákveðnu svæði gera til að styðja mannréttindi fólksins sem býr þar. Mannréttindi eru nefnilega ekki verðlaun sem fólk þarf að vinna sér inn með því að hafa „réttar“ skoðanir. Fólk á rétt á frelsi, öryggi og reisn óháð reglum þess samfélags sem það býr í. Ímyndið ykkur nú að árið 1978 hefði Danmörk ákveðið að taka yfir Ísland, með því að neyða fólk af heimilum sínum, myrða þúsundir og slasa og fangelsa enn fleiri. Næstkomandi ár hefði ofbeldið haldið áfram í síauknum mæli með reglulegum loftárásum sem jafna við jörðu alla þéttbýliskjarna á landinu. Hversu mikið rými hefði hinsegin fólk á Íslandi haft til að berjast fyrir réttindum sínum? Jafnvel í landi þar sem ríkir friður frá stríðsvélum hefur tekið mörg ár að ná fram þeim réttindum sem við búum við í dag. Hvað er þessi bleikþvottur sem er alltaf verið að tala um og hvernig tengist hann Palestínu? Bleikþvottur er þegar fyrirtæki, ríki eða stofnanir leggja ofuráherslu á meinta framsækni sína í hinsegin málefnum, í tilraun til draga athygli frá öðrum sviðum t.d. á sviði mannréttindabrotum eða umhverfisspjöllum. Ísrael notar bleikþvott á markvissan hátt til að draga athyglina frá þjóðarmorði, stríðsglæpum og landráni. Ísrael kúgar og misnotar palestínskt hinsegin fólk kerfisbundið með því að hóta að opinbera hinseginleika þeirra ef að þau vinna ekki með ísraelska hernum. Líkt og hægt er að lesa um hér, hér og hér. Það er bleikþvottur þegar hinsegin hermenn í ólöglegu hernámsliði Ísraels sprengja upp palestínsk heimili og veifa svo regnbogafánum ofan á rústunum og líkum palestínumanna, þar á meðal hinsegin fólks, til að fela glæpi sína og dreifa athygli frá ofbeldi sínu. Það er bleikþvottur þegar Ísrael auglýsir Tel Aviv sem ferðamannastað fyrir hinsegin fólk á meðan það kúgar og myrðir hinsegin palestínufólk nokkrum kílómetrum frá. Það er bleikþvottur þegar okkur er sagt að hata fólk frá Arabalöndum af því þau hati okkur. Það er bleikþvottur þegar árásir á okkur eru eru notaðar í þeim tilgangi að réttlæta ofbeldi gegn öðrum. Frelsisbarátta Palestínu lenti ekki af tilviljun inn í hinsegin baráttu, heldur tengist hún hinsegin baráttu beint vegna þess að Ísrael hefur sjálft ítrekað vísað til hinsegin réttinda og þeirrar ímyndar að Ísrael sé sérstaklega hinseginvænt samfélag. Þetta gerir Ísrael meðal annars til að draga upp mynd af palestínufólki og aröbum sem afturhaldssömum og til að réttlæta hrottalega meðferð sína á þeim. Við sem hinsegin fólk neitum að leyfa Ísrael og bandamönnum þess að nýta sér réttindi okkar og tilvist til að réttlæta þjóðarmorð, aðskilnaðarstefnu og landrán. Þess vegna göngum við fyrir frjálsa Palestínu. Stolt okkar og gleði felst í samstöðu Á tímum þar sem stofnanir og stjórnmálafólk um allan heim ráðast að tilvist og lífum trans fólks og Palestínufólk af öllum kynjum og kynhneigðum berst gegn kúgun Ísraels, verðum við að taka höndum saman til að byggja upp og standa vörð um réttlæti og sjálfsákvörðunarrétt fyrir öll. Stolt okkar og gleði felst í samstöðu og sameiginlegri baráttu sem við heyjum til þess að binda enda á kúgun, hernám og þjóðarmorð alls staðar. Stolt okkar felst í baráttunni fyrir frelsi okkar allra og þess vegna göngum við fyrir frjálsa Palestínu! Höfundar eru aktívisti og tónlistarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Mest lesið Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun