Viðskipti innlent

Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Kattakaffihúsið hefur komið um 170 köttum í fóstur í gegnum árin. 
Kattakaffihúsið hefur komið um 170 köttum í fóstur í gegnum árin.  Samsett

Dyrum Kattakaffihússins, fyrsta og eina kattakaffihúss landsins, á Bergstaðastræti í miðborg Reykjavíkur verður lokað þann 23. ágúst næstkomandi fyrir fullt og allt eftir átta ára rekstur. 

Frá þessu er greint á Facebook-síðu kaffihússins en þar þakka starfsfólk og kettir kaffihússins viðskiptavinum sínum fyrir stundirnar í gegnum árin. 

„Við erum svo þakklát öllum okkar fastagestum sem hafa orðið vinir okkar í gegnum árin og fyrir að hafa fóstrað og elskað meira en 170 ketti,“ segir í færslunni. 

„Dyrnar verða opnar til 23. ágúst þannig að endilega komið við til að fá síðasta knúsið og kaffibollann og til að kveðja.“

Kaffihúsið var opnað þann 1. mars árið 2018 en eigendur og stofnendur þess, Ragnheiður Birgisdóttir og Gígja Sara Björnsson, heyrðu af kattakaffihúsum erlendis og langaði að skapa slíkan stað á Íslandi. Þar dvelja kettir í heimilisleit og viðskiptavinir geta fengið sér kaffibolla og heimsótt kettina í leiðinni. 

„Okkar markmið er að skapa hlýlegt og notalegt umhverfi þar sem fólk getur slakað á, gætt sér á góðum veitingum og hitt kisurnar okkar. Við viljum að kisunum líði vel á meðan þær leita að framtíðarheimili og velferð þeirra er höfð að leiðarljósi á kaffihúsinu,“ segir á heimasíðu Kattakaffihússins. 

Hvað varðar kettina sem dvelja enn á kaffihúsinu sé enn verið að leita að þeirra framtíðarheimilum og allir sem vilja leggja hönd á plóg sé bent á styrktarsíðu Kattakaffihússins. 

„Þar sem þeir eru svo ómótstæðilega sætir og góðir erum við fullviss um að þeir muni finna ástríkar fjölskyldur á næstunni,“ segir í færslunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×