Lífið

Aubrey Plaza orðin mamma

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Aubrey Plaza og Christopher Abbott voru að eignast frumburð sinn í lok júlí.
Aubrey Plaza og Christopher Abbott voru að eignast frumburð sinn í lok júlí. EPA/OLGA FEDOROVA

Grínistinn og leikkonan Aubrey Plaza er orðin móðir. Hún eignaðist frumburð sinn, litla stúlku, í lok júlí með leikaranum Christopher Abbott.

Bæði Plaza og Abbott skutust upp á stjörnuhimininn fyrir leik í vinsælum sjónvarpsþáttum. Aubrey Plaza, sem er fædd árið 1984, fór með hlutverk hinnar alvörugefnu og hnittnu April Ludgate í grínþáttunum Parks and Recreation og Abbott, sem er fæddur 1986, lék hinn töluvert seinheppna Charlie Dattolo í drama-gaman-þáttunum Girls

Það hefur mikið gengið á í lífi Plaza, sem missti eiginmann sinn Jeff Baena í byrjun árs 2025 en hjónin voru þá skilin á borð og sæng. Hún ræddi við vinkonu sína og samstarfskonu Amy Poehler í hlaðvarpi þeirrar síðarnefndu A Good Hang þar sem hún sagði sorgina hafsjó af hræðilegheitum sem væri alltaf yfirvofandi. Hún væri þó að gera sitt besta við að reyna að finna smá gleði í nú-inu og fúnkera. 

Síðastliðið vor staðfesti Plaza að hún ætti von á barni með Dattolo. Þau höfðu leikið á móti hvort öðru á sviði og verið góðir vinir áður en rómantíkin bankaði upp á. Þetta er fyrsta barn þeirra beggja sem takast nú saman á við þetta splunkunýja hlutverk.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.