Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Andri Broddason skrifar 10. ágúst 2026 14:45 Andrea Stella, liðsstjóri McLaren, býst við að liðið sitt nái að blanda sér í toppslag Formúlu 1. Emmanuele Ciancaglini/Getty Images Andrea Stella, liðsstjóri McLaren í Formúlu 1, er bjartsýnn á seinni hluta tímabilsins eftir að liðið vann ungverska kappaksturinn. Liðið á langt í land með að ná fyrsta sætinu en ef marka má frammistöðu liðsins í Ungverjalandi er allt mögulegt.
McLaren er ríkjandi heimsmeistari bílasmiða og ökumaður þeirra, Lando Norris, er ríkjandi heimsmeistari ökumanna í Formúlu 1. Tímabilið fór þó ekki vel af stað fyrir liðið en bæði Mercedes og Ferrari hafa verið mun hraðari á tímabilinu. Í ungverska kappakstrinum uppfærði McLaren-liðið bílinn sinn sem sýndi sig í niðurstöðum keppninnar. Lando Norris var hraðastur í tímatökum og vann síðan keppnina. Liðsfélagi hans Oscar Piastri var í öðru sæti kappakstursins þegar gírkassinn hans skemmdist og gat hann ekki klárað keppnina. Eftir sigurinn þarf Norris að vinna upp 91 stig á Kimi Antonelli í efsta sæti heimsmeistaramótsins. Það virðist vera mikið en á síðasta tímabili náði Max Verstappen, ökumaður Red Bull, að vinna upp 104 stiga mun á Oscar Piastri þegar aðeins níu keppnir voru eftir. Andrea Stella, liðsstjóri McLaren, er ánægður með árangurinn í ungverska kappakstrinum og mun liðið leggja sig allt fram til að halda góðu gengi áfram. „Ef við höldum áfram á þessu tímabili eins og við gerðum í Búdapest þá getum við afrekað mikið. Okkur gekk ekki eins vel í byrjun tímabils og við bjuggumst við en við fundum fínar lausnir á þeim vandamálum. Nú þurfum við að halda áfram góðu gengi.“ Það kom óskipulögð mánaðarpása í apríl eftir að fresta þurfti Barein-kappakstrinum og aflýsa þurfti sádí-arabíska kappakstrinum vegna stríðsátaka á svæðunum. McLaren nýtti þennan tíma vel og bætti bílinn sinn töluvert sem skilaði sér loks í síðustu keppni. Ferrari og Mercedes hafa verið sterkustu liðin á tímabilinu og var McLaren fyrsta liðið utan þeirra beggja til að sækja sigur á tímabilinu. Mögulega mun McLaren-liðið blanda sér í toppbaráttu heimsmeistaramótsins ef það nær að halda áfram góðu gengi eftir sumarfríið.
Mest lesið „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Íslenski boltinn Liverpool og Barcola náð samkomulagi Fótbolti Áhorfendur í áfalli eftir að leikmaður hrundi niður göng Fótbolti Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Fótbolti Ótrúlegt innkast varð að marki Fótbolti Gefur lítið fyrir orð kollega síns: „Ég skil ekki svona“ Fótbolti Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Fótbolti Mikil eftirvænting vegna endurkomu Ingebrigtsen Sport Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Fótbolti Fleiri fréttir Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Formúla 1 leitar til Evrópu ef stríðsátökin halda áfram Hamilton kvartar undan ákvörðunum Ferrari: „Þetta var frekar slæmt“ Ungverski kappaksturinn myndaður af forseta Norris kom sér aftur á sigurbraut Endurkoma Formúlu 1 til Malasíu staðfest vegna stríðsátaka Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Hefur fundið lausn á vandamálinu í Belgíu Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1 Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Hamilton klessti og Ferrari í kapphlaupi við tímann Verstappen breytir bílnum eftir tvo árekstra Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Ökumenn léku sér með Lego fyrir breska kappaksturinn Ætla að vinna saman til að reyna að skáka Antonelli Antonelli á ráspól en liðsfélagi hans fór í vegginn Antonelli skákaði Hamilton í sprettkeppninni Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Ökumenn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring Sjá meira