Forsetahjónin halda til Eistlands Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. ágúst 2026 17:42 Björn Skúlason og Halla Tómasdóttir forseti. Vísir/Vilhelm Halla Tómasdóttir forseti Íslands fer með eiginmanni sínum Birni Skúlasyni í ríkisheimsókn til Eistlands í næstu viku.
Forseti Eistland, Alar Karis, og eiginkona hans Sirje Karis, bjóða til þessarar heimsóknar. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að markmið heimsóknarinnar sé að styrkja hin góðu tengsl landanna tveggja, meðal annars á sviði tækni og menntamála. Í fylgdarliði forseta er Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ásamt opinberri sendinefnd. Viðskiptasendinefnd fer sömuleiðis með, leidd af Íslandsstofu, og tekur þátt í dagskrá með þarlendum fyrirtækjum. Eistnesku forsetahjónin bjóða íslensku forsetahjónin formlega velkomin til Eistlands á ráðhússtorginu í Tallinn að morgni miðvikudagsins 19. ágúst. Þar verður lagður blómsveigur að minnismerki um sjálfstæðisbaráttu eistnesku þjóðarinnar. Í kjölfarið eiga forsetarnir fund í forsetahöllinni ásamt opinberum sendinefndum landanna. Um hádegisbil taka forsetarnir þátt í samtali um gervigreind til góðs á viðburði á vegum viðskiptasendinefnda landanna. Forseti og fylgdarlið snæða að því loknu miðdegisverð í boði forsætisráðherra Eistlands, Kristen Michal. Síðdegis heimsækir forseti meðal annars þinghúsið í Tallinn og fundar með forseta eistneska þingsins, Lauri Hussar. Dagskrá dagsins lýkur með hátíðarkvöldverði í boði eistnesku forsetahjónanna í Arvo Pärt menningarmiðstöðinni í Laulasmaa. Annar dagur heimsóknarinnar, fimmtudagurinn 20. ágúst, er Dagur endurreisnar sjálfstæðis Eistlands. Mun forseti Íslands taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni þess að 35 ár eru liðin frá þeim sögulegu tímamótum. Meðal dagskrárliða er fánahylling í Kuberneri-garðinum og heimsókn í sjónvarpsturninn í Tallinn sem varð tákn um baráttu Eistlendinga gegn sovéskum hersveitum. Forsetahjón og fylgdarlið sækja einnig hátíðarfund eistneska þingsins og hóps eftirlifandi stjórnmálamanna sem samþykktu sjálfstæðisyfirlýsinguna árið 1991. Forseti Íslands flytur þar ávarp ásamt formanni hópsins, forseta Eistlands og þingforsetum Eystrasaltslandanna þriggja. Hún mun einnig ávarpa gesti í árvissri móttöku sem Eistlandsforseti býður til í Rósagarðinum við forsetahöllina um kvöldið. Dagskrá heimsóknarinnar lýkur föstudaginn 21. ágúst. Um morguninn heimsækja forsetahjón og fylgdarlið menntaskóla sem nýtir nýstárlegar kennsluaðferðir tengdar gervigreind. Einnig verða þau viðstödd hátíðlega athöfn á Íslandstorginu í Tallinn laust eftir hádegi.
Forseti Íslands Eistland Halla Tómasdóttir Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira