Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sigurgeir Þorkelsson skrifar 16. ágúst 2026 10:33 Schafer kom meðal annars til Íslands til að berja almyrkvann augum. Instagram/Samsett Bandaríska stjarnan Hunter Schafer var stödd hér á landi á dögunum. Miðað við myndir hennar hefur dvöl hennar hérlendis verið ævintýri líkust og leikkonan virðist lítið hafa kippt sér upp við það þótt veðrið hafi ekki alltaf leikið við hana meðan á dvöl hennar stóð.
Björk Guðmundsdóttir virðist hafa spilað stóran þátt í ferð Schafer en hún sótti sólmyrkvahátíð Bjarkar og Smekkleysu sem fram fór á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Hljóðskúlptúr Bjarkar á Listasafni Íslands, þar sem hún flytur lagið Sorrowful soil ásamt Hamrahlíðarkórnum, fangaði athygli hópsins. Instagram Hátíðin var svokallað reiv og fór fram utandyra. Hátíðin náði að sjálfsögðu hámarki þegar sjálfur almyrkvinn stóð yfir en algjör þögn ríkti í nokkrar mínútur fyrir hann og meðan að á almyrkvanum stóð. Hátíðin féll ekki í kramið hjá öllum en meira má lesa um það í fréttinni hér að ofan. Það gladdi stjörnuna okkar að sjá regnboga en hún er sjálf trans og hefur beitt sér fyrir réttindum hinsegin fólks. Instagram Strax að honum loknum steig Björk á svið og þeytti skífum fyrir trylltan lýð, alls staðar að úr heiminum. Með hjálp nútímatækni geta gestir Echolalia-sýningarinnar mátað á sig grímur Bjarkar, hannaðar af James Merry.Instagram Schafer sótti einnig sýningu á verkum Bjarkar, Echolalia, sem fram fer í Listasafni Íslands fram í október. Tækifærin voru næg til að bregða á leik. Instagram Hluti af sýningunni eru grímur James Merry sem hann hefur árum saman hannað fyrir listakonuna. Snyrtilegt herbergi með gólfsíðum gluggum beið leikkonunnar á Edition-hótelinuInstagram Sjá má af myndum Schafer að hún gisti á Edition-hótelinu í miðborg Reykjavíkur hluta úr dvöl sinni. Edition, sem er fimm stjörnu lúxushótel, gerði greinilega vel við gesti sína sem gistu meðan á almyrkvanum stóð og hafði gleraugu tilbúin í herberginu við innritun. Þær stöllur, Hunter og Havana, nutu sín vel á Íslandi. Ljóst er að laxableikur Arc'teryx-jakki Schafer lék stórt hlutverk í ferðinni. Instagram Schafer virðist einnig hafa gist á Retreat-hóteli Bláa lónsins. Þar ríkir ekkert nema fimm stjörnu últralúxus og hafa gestir meðal annars aðgengi að einkalóni. Schafer leyfði sér líka að vera í flæðinu meðan að á Íslandsdvöl hennar stóð. Schafer spókaði sig einnig um Mosfellsdal þar sem hún skoðaði Helgufoss og gaf sér tíma til að láta streitu líða úr sér í heilnæmri íslenskri náttúru. Með meðfylgjandi roki, að sjálfsögðu. Góður hópur skellti sér í hvalaskoðun.Instagram Schafer skellti sér líka í göngu meðfram strandlengjunni, sem er auðsótt frá Edition-hótelinu sem staðsett er við hlið Hörpu og Reykjavíkurhafnar. Þar brá hún á leik ásamt vinkonu sinni og ferðafélaga, Havana Rose Liu. Havana er, líkt og Hunter, bæði fyrirsæta og leikkona. Drykkurinn var nokkuð sterkur, miðað við viðbrögðin.Instagram Þar að auki tikkaði Schafer í klassísk box en hún skoðaði Gullfoss, fór í hvalaskoðun og bragðaði á áfengum drykk. View this post on Instagram A post shared by Hunter (@hunterschafer) Scafer deildi nýlega myndum úr Íslandsferð sinni með 6,9 milljónum fylgjenda sinna á Instagram við góðar undirtektir.
Frægir á ferð Íslandsvinir Perlur Íslands Björk Tónleikar á Íslandi Hótel á Íslandi Ferðaþjónusta Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Fleiri fréttir Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Sjá meira