Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Áróra L Davíðsdóttir skrifar 19. ágúst 2026 22:34 Samband innan konungsfjölskyldunnar verið stirt frá því að Harry og Meghan ákváðu að hætta að sinna opinberum störfum sínum fyrir konungsfjölskylduna árið 2020. Getty Harry Bretaprins og Meghan, hertogahjónin af Sussex, hyggjast flytja aftur til Bretlands ásamt börnum sínum tveimur, Archie prins og Lillíbet prinsessu. Þau fluttu til Bandaríkjanna árið 2020.
Breskir miðlar greina frá þessu. Samkvæmt heimildum Sky News hefur Karl Bretakonungur verið upplýstur um áform hjónanna að flytja aftur heim til Bretlands og er sagður fagna því að fá að hitta fjölskylduna oftar. Mikið hefur verið fjallað um stirt samband innan konungsfjölskyldunnar á síðustu árum en Harry og Meghan ákváðu að hætta að sinna hlutverkum sínum í konungsfjölskyldunni árið 2020 og fluttu í kjölfarið til Kaliforníu í Bandaríkjunum. Þá var Archie prins tæplega eins árs gamall. Fjölskyldan ætli sér að setjast að fyrir utan London og að börnin, sem nú eru sjö og fimm ára, muni hefja skólagöngu í breskum skóla í september. Talið er að engin breyting verði á stöðu hjónanna sem óstarfandi meðlimir konungsfjölskyldunnar og verða þau því áfram „almennir borgarar,“ segir í umfjöllun BBC. Harry hafi aðeins í örfá skipti sótt Bretland heim síðan fjölskyldan fluttist til Bandaríkjanna, og þá yfirleitt einn síns liðs. Fjölskyldan heimsótti Karl Bretakonung í Highgrove í júlí síðastliðnum en það var fyrsta heimsókn þeirra í fjögur ár eða frá því árið 2022 þegar þau voru viðstödd útför Elísabetar drottningar.
Harry og Meghan Bretland Kóngafólk Karl III Bretakonungur Mest lesið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Lífið South Park verður South America Lífið Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Lífið Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Lífið Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Lífið samstarf Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning Fleiri fréttir Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Sjá meira