Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. ágúst 2026 13:40 Sigurður Gunnar virðist hafa reynt að hafa áhrif á vitnisburð konunnar. Vísir/Vilhelm Sigurður Gunnar virðist hafa verið viðstaddur og haft afskipti af vitnisburði eiginkonu sinnar í Reykholtsmálinu. Hún segist hafa verið veik umrædda helgi og muni ekkert.
Sigurður og konan voru í sambúð umrædda helgi í apríl 2024 þegar Sigurði ásamt fimm öðrum er gefið að sök að hafa frelsissvipt og fjárkúgað maltneskan mann. Rúv greinir frá því að þau hafi skilið síðan þá og sé hún fyrrverandi eiginkona hans. Hún hygðist gefa skýrslu í gegnum fjarfundarbúnað en í fyrstu spurningunni heyrðist í karlmannsrödd í bakgrunninum. Sækjandi og dómari mátu svo að þar væri Sigurður Gunnar að hafa afskipti af vitnisburðinum. „Ég veit að maðurinn minn er saklaus,“ var eina setningin sem hún náði að segja. Vegna þessa gerði dómarinn henni að mæta sjálf fyrir dómara svo enginn gæti haft áhrif á vitnisburðinn hennar. „Þetta gengur ekki, þú verður að koma sjálf og koma fyrir dómara,“ sagði dómarinn við vitnið. „Sækjandi heyrði í eiginmanni þínum í bakgrunni.“ Konan reyndi að þvertaka fyrir það og sagði að Sigurður hefði einungis verið á leiðinni á baðherbergið og væri í stofunni. Hún væri því ein. „Þetta er ekki til umræðu, þú verður að koma sjálf,“ svaraði dómarinn. Við þetta andvarpaði konan en samþykkti að mæta síðar í dag og gefa vitnisburðinn sinn í dómssal. Var veik og muni ekkert Þegar konan, sem vísar í Sigurð sem eiginmann sinn, mætir loks fyrir dóm kemur Sigurður með í för. Dómari gerir skýrt fyrir henni að hún þurfi ekki að segja neitt sem varðar eiginmann hennar, stjúpdóttur og tengdason. „Ég vil bara segja að ég veit að maðurinn minn er saklaus. En ég ætla að nýta rétt minn því ég vil ekki segja neitt vegna sambands við eiginmann minn Sigurður Gunnar Ásgeirsson og stjúpdóttur Ingunnar Rutar Sigurðardóttir,“ segir konan. Henni er samt sem áður gert að svara spurningum um meintan þátt hinna þriggja. „Ég var veik og ég var uppi í rúmi,“ segir hún aðspurð. Textaskilaboð sem eiginkonan sendi á son sinn annars vegar og móður hins vegar eru borin undir hana. Þar spyr sonurinn um nýjustu fréttir af „arabanum“ en konan segist ekki muna eftir þeim. Hún kannast þá ekki við að hafa rætt brotaþola við son sinn og eigi erfitt með að muna eftir að hafa dvalið á geðsjúkrahúsi. Aðspurð um samskipti milli hennar og brotaþola. Ítrekar hún að hún muni ekkert. Fréttin hefur verið uppfærð eftir vitnisburðinn.
Fjárkúgun í Reykholti Dómsmál Bláskógabyggð Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira