Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. ágúst 2026 00:09 Palestínsk kona snýr hér til baka á heimili sitt eftir eftir að ísraelskt landtökufólk hafði kveikt í því. Myndin var tekin í gær á Vesturbakkanum sunnanverðum, nærri Hebron. Getty/Wisam Hashlamoun Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Kanada fordæma fyrirhugaðar landtökubyggðir Ísraelsmanna á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum svokallaða, svæði sem tilheyrir Palestínu. Húsnæðismálaráðuneyti Ísraels gaf í fyrradag út útboðsgögn fyrir 1200 ný heimili á hernumdu svæði.
Í yfirlýsingu ríkjanna fimm eru áætlanir Ísraelsríkis sagðar óásættanlegar og þess krafist að ákvörðunin verði dregin til baka hið snarasta. Segja þau að fyrirætlanirnar grafi undan öllum áætlunum um frið og grafi undan stöðu Ísraels á alþjóðavettvangi. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, gaf einnig út yfirlýsingu þar sem hann sagði fyrirætlanirnar ógn við samfellt, samhangandi Palestínuríki. Þá gaf utanríkisráðherra Belgíu einnig út yfirlýsingu vegna málsins. Landtaka Ísraelsmanna á palestínskum landsvæðum er ólögleg samkvæmt alþjóðalögum. Ísraelsk stjórnvöld höfðu, sökum þrýstings alþjóðasamfélagsins, haldið sig frá landtöku á hinu svokallaða E1-svæði áratugum saman. Kortið sýnir legu E1-svæðisins. OCHA Lykilstaðsetning svæðisins, milli Austur-Jerúsalem og Vesturbakkans, mun gera ísraelskum stjórnvöldum kleift að reka fleyg í yfirráðasvæði Palestínumanna og aðskilja byggðir þeirra í norðri og suðri á Vesturbakkanum. Vilja gera úti um tveggja ríkja lausnina Fyrirætlanir ríkisstjórnar Ísraels um landtökubyggðir á svæðinu voru fyrst kynntar í ágúst 2025. Við tilefnið sagði einn leiðtoga ríkisstjórnarinnar, fjármálaráðherrann Bezalel Smotrich, að með þessum aðgerðum mætti „grafa“ allar fyrirætlanir um tveggja ríkja lausn á deilu Ísraels og Palestínu. Í sérstakri athöfn mánuðinn eftir, þar sem áætlunin var kynnt og undirrituð, sagði Benjamín Netanyahu forsætisráðherra: „Það verður ekkert palestínskt ríki! Svæðið er okkar.“ Prime Minister Benjamin Netanyahu, this evening, at the signing ceremony for the roof agreement in Maale Adumim:"There will be no Palestinian state! This place is ours."https://t.co/U3T7t1TTax pic.twitter.com/OwnTi2eADb— Prime Minister of Israel (@IsraeliPM) September 11, 2025 Áætlunin hljóðaði upp á 3400 íbúðir og hafa nú verið gefin út útboðsgögn fyrir 1200 þeirra. Útboðsfrestur rennur út 19. október, átta dögum áður en gengið verður til þingkosninga í Ísrael. Mannréttindasamtök fordæma Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa fordæmt ákvörðunina og segja hana áfram ýta undir aðskilnaðarstefnu (e. Apartheid) ísraelskra stjórnvalda. Þau fyrirtæki sem taki þátt í útborðsferlinu geri sig þar með samsek mannréttindabrotum, stríðsglæpum og glæpum gegn mannkyni, segir í yfirlýsingu samtakanna en uppbygging á svæðinu felur meðal annars í sér uppbyggingu vega, verslana og iðnaðarsvæðis auk húsnæðisuppbyggingarinnar. Ofbeldi landtökufólks hefur farið vaxandi síðustu ár, segir Human Rights Watch. Getty/Wisam Hashlamoun Samtökin segjast hafa orðið vör við aukið ofbeldi ísraelsks landtökufólks á hendur Palestínumönnum frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum árið 2022. Þá sýni skráning samtakanna aukinn hraða í útbreiðslu landtökubyggðanna og slíkt hið sama geri skýrsla á vegum Sameinuðu þjóðanna sem kom út í upphafi árs.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið Innlent Fleiri fréttir Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Sjá meira