Sigur­mark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endur­komu Mourinhos

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
José Mourinho ræðir við Carlos Espí sem reyndist örlagavaldurinn í leik Espanyol og Real Madrid.
José Mourinho ræðir við Carlos Espí sem reyndist örlagavaldurinn í leik Espanyol og Real Madrid. getty/David Ramos

José Mourinho stýrði Real Madrid í fyrsta sinn í keppnisleik í þrettán ár þegar liðið mætti Espanyol á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Einn af nýju leikmönnum Real Madrid skoraði sigurmark liðsins undir blálokin, 1-2.

Real Madrid hefur farið mikinn á félagaskiptamarkaðnum í sumar en fáir veittu eflaust kaupunum á Carlos Espí mikla athygli.

Real Madrid keypti þennan 21 árs hávaxna framherja frá Levante og hann var einn þriggja leikmanna sem Mourinho skipti inn á þegar tíu mínútur voru eftir í leiknum í kvöld.

Á lokamínútunni barst boltinn til Espís inni í vítateig Espanyol og hann kom honum í netið og tryggði Real Madrid stigin þrjú, 1-2.

Strákarnir hans Mourinhos náðu forystunni á 9. mínútu þegar Jude Bellingham skallaði aukaspyrnu Ardas Güler í netið.

Á 30. mínútu jafnaði Álex Calatrava fyrir Espanyol og heimamenn sáu stig í hillingu. En Espí gerði þær vonir þeirra að engu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira