Real Madrid CF

Fréttamynd

Blóðugur Mbappé fékk ekkert fyrir sinn snúð

Real Madrid gerði 1-1 jafntefli við Girona í 31. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar og spænska stórliðið hefur nú leikið þrjá leiki í röð án sigurs. Kylian Mbappé fékk olnbogaskot í andlitið en enga vítaspyrnu. 

Fótbolti
Fréttamynd

Elsti sonur Ron­aldo æfir með Real Madrid

Elsti sonur portúgölsku stórstjörnunnar Cristiano Ronaldo, Ronaldo Jr., æfir þessa dagana í akademíu spænska stórveldisins Real Madrid og gæti gengið til liðs við félagið þar sem faðir hans er goðsögn. 

Fótbolti
Fréttamynd

„Önnur sönnun fyrir hæfi­leikum hans, hug­rekki og karakter“

Alvaro Arbeloa, þjálfari Real Madrid, er á því að brasilíski framherjinn Vinícius Júnior sé „ekki langt frá“ sínu besta formi á ferlinum eftir að framherjinn skoraði tvö mörk – þar á meðal stórkostlegt sigurmark – í 3-2 sigri Real Madrid á Atlético Madrid í spænsku deildinni á sunnudagskvöldið.

Fótbolti
Fréttamynd

„Mjög dapur í langan tíma“

Enski landsliðsmiðjumaðurinn Jude Bellingham viðurkenndi að hann hefði verið „mjög dapur í langan tíma“ á meðan hann vann að því að jafna sig af meiðslum aftan í læri. Bellingham átti endurkomu í lið Real Madrid í 3-2 sigri liðsins á Atlético Madrid í spænsku deildinni í gær.

Fótbolti
Fréttamynd

Stjörnurnar með Madrídingum til Manchester

Kylian Mbappé og Jude Bellingham fara báðir með liði Real Madrid til Manchester þar sem síðari leikur liðsins við Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fer fram annað kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

„Það er kannski einn sem má svindla“

Real Madrid saknaði ekki mikið stórstjörnunnar Kylian Mbappé í 3-0 sigri sínum á Manchester City í gær í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Þessi frammistaða liðsins án Mbappé kallaði á kenningar hjá sérfræðingi í Meistaradeildarmörkunum.

Fótbolti
Fréttamynd

Man United gerði hærra til­boð í Bale

Gareth Bale hefur upplýst að Manchester United hafi gert hærra tilboð í hann en Real Madrid á meðan hann var hjá Tottenham en sagði að hann hefði verið staðráðinn í að fara til spænska risans.

Enski boltinn
  • «
  • 1
  • 2