Bíó og sjónvarp

Meghan snýr aftur á skjáinn

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Í vikunni var greint frá því að Harry og Meghan hygðust flytja aftur til Bretlands ásamt börnum sínum tveimur, Archie prins og Lillíbet prinsessu.
Í vikunni var greint frá því að Harry og Meghan hygðust flytja aftur til Bretlands ásamt börnum sínum tveimur, Archie prins og Lillíbet prinsessu. Getty

Meghan, hertogaynjan af Sussex, stendur nú í viðræðum um hlutverk í Netflix-þáttunum The Gentlemen. Leikkonan fyrrverandi hætti leiklistinni eftir að hún giftist Harry Bretaprinsi, hertoganum af Sussex, árið 2018.

Breskir miðlar greina frá þessu og segja viðræðurnar vera á byrjunarstigi en The Sun segir hana vera „mjög spennta“ fyrir hlutverkinu og tækifærinu að leika á ný. The Gentlemen eru glæpa-gamanþættir um hertoga sem gerist eiturlyfjabarón, með Theo James í aðalhlutverki.

Hennar stærsta hlutverk var lögfræðingurinn Rachel Zane í lögfræðidramaþáttunum Suits en þar lék hún í alls sjö þáttaröðum, til ársins 2018. Í fyrra fór hún með aukahlutverk sem hún sjálf í gamanmyndinni Close Personal Friends en hún hætti alfarið leiklistinni þegar hún giftist eiginmanni sínum Harry Bretaprinsi.

Þá sagði Meghan við BBC að hún liti ekki á það að hætta leiklistinni sem fórn heldur væri hún að hefja nýjan kafla í sínu lífi.

Í vikunni var greint frá því að hertogahjónin hygðust flytja aftur til Bretlands eftir sex ára dvöl í Bandaríkjunum ásamt börnunum sínum tveimur.

Fjölskyldan ætli sér að setjast að fyrir utan London og Archie prins og Lillíbet prinsessa, sem nú eru sjö og fimm ára, muni hefja skólagöngu í breskum skóla í september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.