Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Áróra L Davíðsdóttir skrifar 21. ágúst 2026 20:13 Jón Björn Hákonarson er formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga SÝN Formaður Sambands Íslenskra sveitarfélaga segir gjaldskrárhækkanir sveitarfélaganna ekki vera sökudólg vaxtahækkana. Launafólki hafi þó fjölgað í opinberri þjónustu sveitarfélaganna fyrr á árinu. Sveitarfélögin séu jafnframt reiðubúin í að taka þátt í baráttu gegn verðbólgu og vandamálið verði ekki leyst nema með samvinnu.
Seðlabankinn beindi spjótum sínum að hinu opinbera við ákvörðun vaxtahækkunarinnar á miðvikudaginn. Seðlabankastjóri sagði aukna verðbólgu að miklu leyti skýrast af hækkun opinberra gjalda og að opinberum starfsmönnum hefði fjölgað. Bankinn hefur jafnframt varað við sjálfvirkum gjaldskrárhækkunum í takt við verðlag. Stýrivextir voru hækkaðir um fjórðung úr prósentustigi í á miðvikudag og eru nú átta prósent. Illa hefur gengið að draga úr verðbólgunni sem mældist 5,3 prósent í júlí. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, sagði í morgun að gjaldskrárhækkanir ríkisins sjáist ekki í tölum Hagstofunnar og Daði Már Kristófersson sagði að opinberum starfsmönnum ríkisins hefði ekki fjölgað og benti á sveitarfélögin. Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir vel hafa gengið að standa við það markmið að hækka ekki gjaldskrár sem snerta fjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu umfram þrjú og hálft prósent. Hann geti ekki greint það að gjaldskrárhækkanir hafi valdið verðbólgu. „Sveitarfélögin gerðu betur en það ef við skoðum mælingarnar. Ég er ekki sammála Seðlabankastjóra þarna vegna þess að mörg sveitarfélög hafa stigið lengra, tekið til baka og sett sér markmið á þessu ári. Þannig ég get ekki greint að þetta sé það sem er að valda þessu,“ sagði Jón Björn í myndveri í kvöldfréttum Sýnar. Opinberum starfsmönnum fjölgað til að bregðast við biðlistum Fjölgun opinberra starfsmanna hafi legið fyrir en bregðast þurfti við biðlistum leikskóla og þjónustu sem snertir viðkvæma hópa samfélagsins. Starfsmönnum hafi fjölgað frá janúar til maí á þessu ári. „Sannarlega hefur þetta aukist hjá okkur af því við erum auðvitað með þessa mikilvægu nærþjónustu til að samfélagið okkar geti starfað. Og við höfum verið að bregðast við því.“ Munuð þið hvetja sveitarfélög til þess að halda aftur af gjaldskrárhækkunum í núna haust? „Við sveitarfélögin höfum verið mjög skýr og ég hef fundið það hjá sveitarstjórnarmönnum um allt land að við viljum að þetta sé sameiginlegt verkefni. Þetta er stórt sameiginlegt verkefni stjórnvalda, vinnumarkaðarins og atvinnulífsins hvernig við spyrnum við og stígum til baka. Við erum ávallt tilbúin til að stíga sáttarskref í þeim efnum. Þetta snertir okkur öll. Þetta verður ekki leyst nema með samvinnu.“
Sveitarstjórnarmál Seðlabankinn Verðlag Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Fleiri fréttir Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Sjá meira