Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 21. ágúst 2026 21:09 Myndin er frá Reykjavíkurmaraþoninu á Menningarnótt árið 2018. Vísir/Vilhelm Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp.
Yfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer á morgun. Uppselt er í tíu kílómetra í keppnisflokki og stuttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon. „Menn þurfa bara að búa sig undir vatn á götum og bleytu á göllunum,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur en hann var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann segir lægð stefna að landinu úr suðvestri og seint í kvöld byrji að rigna. Búast megi við því að úrkoman verði samfelld í fyrramálið og fram eftir degi. Samhliða því verði suðvestanátt í miðborginni á bilinu sex til níu metrar á sekúndu. „Þetta er ekki strekkingur bara svona léttur blástur. En sums staðar eru byggingar sem skýla eða magna vindinn enn meira,“ segir Einar. Möguleiki sé á að stytti upp um miðjan dag á morgun. „Það er kannski frekar óskhyggja heldur en raunhyggja,“ segir Einar. Síðdegis á morgun megi búast við að bætist í vind og hann geti orðið um og yfir tíu metrar á sekúndu „og slagveðursrigning í einhvern tíma.“ Gestir miðborgarinnar gætu þó átt von á að geta notið flugeldasýningunnar í þurru en um tíuleytið á að bæði lægja og stytta upp. Flugeldasýningin hefst að Tónaflóði loknu á Arnarhóli, klukkan tíu.
Menningarnótt Veður Hlaup Reykjavík Reykjavíkurmaraþon Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Innlent Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Fleiri fréttir Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Snarpar vindkviður á Austfjörðum og sunnan við Vatnajökul Sjá meira