Formúla 1

Harka­legur á­rekstur hjá Verstappen á heima­slóðum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Verstappen var svekktur að sjá þegar hann gekk af brautinni, en í góðu lagi sem er fyrir öllu.
Verstappen var svekktur að sjá þegar hann gekk af brautinni, en í góðu lagi sem er fyrir öllu. formula 1

Hollendingurinn Max Verstappen, ökumaður Red Bull, er úr leik í Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í Hollandi þessa stundina. Verstappen klessti harkalega á fyrsta hring.

Verstappen missti stjórn á bílnum í hröðustu beygju hringsins, klessti á steypuvegg og snerist út af brautinni.

Rautt flagg fór á loft og öryggisbíll út á braut eftir árekstur Verstappen en Gabriel Bortoleto ökumaður Audi lenti líka í árekstri á fyrsta hring.

Verstappen gaf í skyn að hann væri í góðu lagi í liðsútvarpinu en ljóst er að hans keppni á heimaslóðum í Hollandi er lokið.

Myndskeið af árekstri Verstappen má sjá hér fyrir neðan. Formúlu 1 kappaksturinn í Hollandi er í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.

Klippa: Harkalegur árekstur hjá Verstappen á fyrsta hring



Fleiri fréttir

Sjá meira


×