Formúla 1

Kimi Antonelli á ráspólnum á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það er bara tímaspursmál hvenær hinn tvítugi Kimi Antonelli verður heimsmeistari í fyrsta sinn.
Það er bara tímaspursmál hvenær hinn tvítugi Kimi Antonelli verður heimsmeistari í fyrsta sinn. AP/Eric Vryn

Ítalski ökumaðurinn Kimi Antonelli hjá Mercedes verður á ráspól í Texas-kappakstrinum í Formúlu 1 en það varð ljóst eftir tímatökuna í kvöld.

Næstir á eftir Antonelli á ráspólnum verða þeir Max Verstappen og liðsfélagi hans hjá Red Bull, Isack Hadjar.

Antonelli getur tryggt sér heimsmeistaratitilinn á morgun ef hann klárar sitt á meðan George Russell, liðsfélaga hans hjá Mercedes, og Lewis Hamilton hjá Ferrari tekst ekki vel upp.

Frammistaða þeirra í tímatökunni jók bara líkurnar á því þar sem Russell er bara sjöundi á ráslínunni, en Lewis Hamilton klifraði upp í fimmta sæti á eftir liðsfélaga sínum hjá Ferrari, Charles Leclerc.

Þetta er sjöundi kappaksturinn þar sem Antonelli ræsir fyrstur en jafnframt í fyrsta sinn síðan í belgíska kappakstrinum í júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×