Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 23. ágúst 2026 18:43 Sveinn Logi Sölvason, forstjóri Emblu Medical, móðurfyrirtækis Össurar, og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Samsett Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair og Sveinn Logi Sölvason forstjóri Emblu Medical, móðurfélags Össurar, eru sammála um að þunglamaleg reglugerð Evrópusambandsins geti þrengt að rekstri fyrirtækja innan sambandsins og gæta þurfi að samkeppnishæfni þeirra. Hins vegar stuðli vinnumarkaðsmódelið hérlendis að óstöðugleika og geti verið heilmikil áskorun í fyrirtækjarekstri.
Bogi Nils og Sveinn Logi voru til viðtals í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun og ræddu bæði áskoranir og tækifæri alþjóðlegs fyrirtækjareksturs innan Evrópusambandsins. Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Bogi segir Evrópusambandið setja hamlandi reglur fyrir samkeppnishæfni flugfélaga í Evrópu. Verði til aðildar Íslands að Evrópusambandinu hafi reglugerðir sambandsins slæm áhrif á rekstur flugfélaga á Íslandi og þar af leiðandi íslenskt hagkerfi. „Og vegna þess hvar við erum stödd hérna í miðju Atlantshafinu, þá hefur þetta sérstaklega slæm áhrif á Ísland, flugfélög sem gera út frá Íslandi og tengimiðstöðina hérna á Íslandi og þar af leiðandi bara íslenska hagkerfið,“ segir Bogi. Evrópusambandið setji flugi í Evrópu stólinn fyrir dyrnar Ekki myndi breyta neinu að vera með sæti við borðið að sögn Boga. Nýleg skýrsla sýni fram á að samkeppnishæfni Evrópu sé á fallandi fæti vegna regluverksins innan Evrópusambandsins. „Það er áfram verið að horfa til þess að skerða samkeppnishæfni evrópskra flugfélaga og sérstaklega flugfélaga sem gera út frá Íslandi af því að við erum að fljúga lengri leiðir innan þessa kerfis heldur en allir aðrir,“ segir Bogi. Samþykkt hafi verið að veita Íslandi sérlausn næstu þrjú árin „en í flugrekstri þarf að horfa til mjög langs tíma,“ segir Bogi. Þó að Ísland fái sérlausn sé reksturinn undir í samkeppnishæfni, bæði við önnur evrópsk flugfélög og bandarísk. Sveinn Logi tekur undir með Boga og segir regluverk Evrópusambandsins oft þunglamalegt og að gæta þurfi miklu betur að samkeppnishæfni fyrirtækja innan Evrópusambandsins. „Sú gagnrýni á fyllilega rétt á sér og það þarf að gæta miklu betur að samkeppnishæfni fyrirtækja innan Evrópusambandsins,“ segir Sveinn. Krefjandi að vera með gjaldmiðil sem tekur mið af sveiflum í Evrópu Sveinn og Bogi sammælast um það að vinnumarkaðsmódelið á Íslandi geti valdið óstöðugleika og sé áskorun í alþjóðlegum fyrirtækjarekstri hérlendis. Erfitt sé að sannfæra erlenda fjárfesta um að koma inn í íslensk krónuviðskipti. „Þegar við berum okkur saman við nágrannalöndin sem við erum að keppa við þá erum við að hækka laun hér langt umfram það sem að útflutningsgreinarnar þola. Það eru önnur lönd ekki að gera. Það er mjög krefjandi og er að mínu mati okkar stærsti veikleiki,“ segir Bogi. Þeir sammælast um bæði megi nefna kosti og galla við krónu og evru. Krónan sé ekki „stóra vandamálið“ í rekstri Icelandair en ekki sé ákjósanlegt fyrir litla þjóð að vera með eigin gjaldmiðil, segir Bogi. „Ég sé ekki alveg hvernig það verður fyrir okkur ef við tækjum upp evru. Gjaldmiðillinn aðlagar kerfið að því hvernig gengur og ég held að það geti verið ansi krefjandi að vera með gjaldmiðil sem tekur mið af því hvernig gengur á Ítalíu, Frakklandi og Spáni, bæði í niðursveiflu og uppsveiflu,“ segir Bogi Eitthvað í kerfinu búi til óstöðugleika og ófyrirsjáanleika hagkerfisins að sögn Sveins. Sameiginlega sýn þurfi á hvernig eigi að stilla þessi kerfi til þess að hægt sé að mynda meiri stöðugleika. „Við þurfum að skoða kerfið sem við erum að vinna eftir. Við erum með lítið hagkerfi sem er með fáar, stundum sveiflukenndar, tekjustoðir. Við erum með lítinn gjaldmiðil sem er sveiflukenndur líka og við erum með verðtryggðu krónuna og óverðtryggðu krónuna. Við flytjum allt inn sem við þurfum að nota,“ segir Sveinn. Mikilvægt sé fyrir Ísland að byggja á fleiri stoðum hvað verðmætasköpun varðar. Tækifæri séu innan myntbandalags Evrópusambandsins til að skapa stöðugt umhverfi fyrirtækja á Íslandi. „Okkur hefur gengið vel að búa til fleiri fyrirtæki eins og Össur, en það er tækifæri til þess að, með því að stefna á að vera hluti af myntbandalaginu, að búa til einhvern farveg þar sem við getum skref fyrir skref fært okkur inn í stöðugt umhverfi hvað þessi gjaldmiðlamál varðar og búið þar til meiri stöðugleika í umhverfi fyrirtækja hér á Íslandi, sem ég held að skipti mjög miklu máli þegar við horfum fram á veginn og hvernig við ætlum að skjóta hér fleiri stoðum undir verðmætasköpun á Íslandi,“ segir Sveinn Logi.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Flug Vinnumarkaður Samkeppnismál Mest lesið Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Sjá meira