„Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Árni Gísli Magnússon skrifar 23. ágúst 2026 21:30 Vel lá á Óskari Hrafni Þorvaldssyni eftir sigur KR á KA á Akureyri. vísir/guðmundur Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var ánægður með að hafa sótt þrjú stig norður þegar lið hans sigraði KA 5-3 á Greifavellinum á Akureyri. Hann fór vel yfir leik dagsins skömmu eftir lokaflaut. „
Mér líður nú bara mjög vel. Mér fannst við stjórna þessum leik frá nánast upphafi til enda. Hefðum getað skorað töluvert fleiri mörk, mér fannst þeir nýta sín möguleika vel. Hallgrímur [Mar Steingrímsson] skorar af mjög löngu færi, þeir skora eftir horn og svo skora þeir þegar við sofnum á verðinum undir lokin. Þeir nýta bara sín færi vel,“ sagði Óskar eftir leikinn. „Ég veit það vel að það er ekki auðvelt að koma hingað á Akureyri, skiptir í raun og veru engu máli í hvaða stöðu liðið er eða hvernig er búið að ganga, það er bara erfitt að koma hingað og sækja sigur. Þannig ég er gríðarlega ánægður með það og ég er mjög ánægður með af langstærstum hluta frammistöðu okkar í dag, mér fannst hún mjög öflug.“ Vill að Aron slái markametið Aron Sigurðarson var búinn að skora þrennu eftir 28 mínútur og er nú kominn með 20 mörk í deildinni eftir 20 leiki. Fleiri mörk en nokkrum hefur tekist að skora í 22 leikjum. Óskar fór fögrum orðum um Aron en vill samt sem áður fá meira frá honum. „Hann er auðvitað bara frábær leikmaður, ég vil samt fá meira frá honum. Mér finnst hann verða að taka betri ákvarðanir oft á tíðum, hann þarf að einfalda leiki stundum. Stundum leitar hann eftir erfiðu sendingunni í staðinn fyrir að gera hlutina einfalt þannig ég væri til í að sjá hann bæta sig þar. Auðvitað er hann frábær leikmaður, þegar hann er farinn að skora með skalla á nærstöng eftir hornspyrnu þá veistu að það er eitthvað gott að gerast,“ sagði Óskar. „Þetta er bara mikilvægasti leikmaður okkar og fyrirliði og maðurinn sem að keyrir þetta áfram. Ég óska einskis heitar en að hann slái þetta markamet en við þurfum bara alltaf að muna í grunninn er þetta liðsíþrótt og við gætum stundum gert hlutina aðeins einfaldari en frábær leikmaður, meiriháttar gaman að þjálfa hann og yndisleg persóna.“ Á skilið að hafa spilað meira Sigurður Breki Kárason er aðeins 17 ára gamall en hann lagði upp þrjú mörk í dag og átti glimrandi leik.Fjórða mark KR var einkar laglegt liðsmark sem Sigurður Breki lagði upp með hælsendingu. „Já það var virkilega fallegt, gaman að sjá það, auðvitað Sigurður Breki, hvað á ég að segja einn af bestu mönnunum okkar á undirbúningstímabilinu svo meiðist hann rétt fyrir mót,“ sagði Óskar. „Síðan bara á einhverjum tímapunkti finnum við miðju sem er Orri [Hrafn Kjartansson], Krummi [Hrafn Tómasson], Aron og Arnór Ingvi [Traustason] og Siggi líður bara fyrir það. Ég væri til í að hann væri búinn að spila mikið meira, hann á skilið að spila meira og hann sýnir það auðvitað bara í dag að hann er framúrskarandi efnilegur leikmaður og sjálfsagt ekkert sem kom mér neitt sérstaklega á óvart í því.“ Varnarleikurinn eilífðarverkefni Ég ætla giska á að þér sé nokkuð sama þó að KA skori þrjú mörk? Af því að þið skorið fimm og um það snýst þetta. „Já, þetta snýst um að skora fleiri en andstæðingurinn segja þeir. Þetta er svo erfitt, við auðvitað setjum marga menn fram, við fórnum miklu fyrir sóknarleikinn hjá okkur og þó það afsaki reyndar ekki föst leikatriði, mörk sem við fáum á okkur úr föstum leikatriðum, þá erum við auðvitað oft á tíðum svolítið fámennir til baka og við viljum auðvitað vera betri í því að verjast,“ sagði Óskar. „Við viljum halda oftar núllinu en í dag erum við bara þar að ef við skorum fleiri mörk en andstæðingurinn þá er ég sáttur því það þýðir að við höfum bæði spilað góðan sóknarleik og sigrað, fengið þrjú stig. Auðvitað viljum við bæta varnarleikinn og það verður bara eilífðarverkefni.“
Besta deild karla KR KA Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Enski boltinn Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti FH - Þór | Ævintýri Þórsara fullkomnað? Íslenski boltinn Fleiri fréttir KR - Breiðablik | Slær Aron markametið? ÍA - Keflavík | Geta náð besta árangri í mörg ár FH - Þór | Ævintýri Þórsara fullkomnað? KA - ÍBV | Taka gestirnir KA-menn með sér niður? Stjarnan - Valur | Kveðjustund í Garðabæ Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Sjá meira