Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 11:02 Joost Klein var fulltrúi Hollendinga síðast þegar þeir tóku þátt í Eurovision, árið 2024 í Svíðþjóð. AP/Martin Meissner Hollenska sjónvarpsstöðin AVROTROS ætlar að sniðganga Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2027 sem haldin verður í Búlgaríu. Hollendingar tóku ekki þátt í keppninni í ár og stöðin segir hana ekki lengur vera hlutlausa vegna þátttöku ríkja sem eigi í átökum.
Sjónvarpsstöðin AVROTROS greinir frá þessu í tilkynningu, en hún hefur sent inn framlög Hollands í Eurovision síðustu ár. Þar segir að stöðin muni ekki taka þátt þar sem keppnin teljist ekki lengur hlutlaus þar sem eitt ríkjanna sem tekur þátt eigi enn í stórfelldum hernaðarátökum. Mannúðarkrísa á Gasa og viðvarandi takmarkanir á fjölmiðlafrelsi hafi stuðlað að vaxandi ágreiningi í kringum Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva undanfarin ár. „Pólitísk spenna í Mið-Austurlöndum hefur veruleg áhrif á keppnina og hefur leitt til djúpstæðs ágreinings,“ segir í tilkynningunni. Það endurspeglist í sniðgöngu fimm ríkja á keppninni í fyrra en Ísland var meðal þeirra sem sniðgengu Eurovision í ár. Vísað var til þess að þátttaka ísraelska ríkissjónvarpsins KAN hefði valdið óeiningu, bæði meðal aðildarstöðva Sambands evrópskra útvarpsstöðva og almennings. Auk Íslands og Hollands tóku Spánverjar, Írar og Slóvenar ekki þátt í keppninni í ár. Þar að auki hafi fyrrum sigurvegarar skilað verðlaunagripum sínum og yfir þúsund tónlistarmenn skorað á EBU í opnu bréfi að grípa inn í. Það undirstriki þörfina fyrir skýran ramma til að meta þátttöku landa sem eiga í hernaðarátökum. Þátttaka sé ekki í samræmi við gildi AVROTROS Undanfarið ár hafi sjónvarpsstöðin skorað á Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) að setja gagnsæjar reglur um þátttöku landa sem eiga í hernaðarátökum. Hins vegar veiti nýlega tilkynntar breytingar af hálfu EBU ekki nægilegt traust á því að sjálfstætt og hlutlaust eðli Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hafi verið endurreist. Enn þyki AVROTROS óljóst við hvaða kringumstæður þátttaka samræmist hlutlausri keppni og hvenær ekki. „Þátttaka er því ekki lengur í samræmi við gildi AVROTROS: áreiðanleika, sjálfstæði og mannúð.“ Lokaákvörðun sé hins vegar í höndum hollenska ríkisútvarpsins, NPO. Ekki megi halda keppnina þar sem vopnuð átök fari fram Nýverið gerði EBU breytingar á reglum keppninnar en þær munu vera í gildi í keppninni á næsta ári. Þær kveða meðal annars á um að sigurþjóðir geti misst rétt á að halda keppnina ef vopnuð átök eiga sér stað í landinu. „Þar sem vopnuð átök, viðkvæm landfræðileg staða eða aðrar ástæður hafa veruleg áhrif á öryggi, vernd eða stöðugleika á landinu eða nærliggjandi svæði þátttökusjónvarpsstöðvar, skal sú þátttökusjónvarpsstöð ekki vera gjaldgeng til að halda næstu Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva ef framlag hennar sigrar,“ segir í tilkynningu EBU. Fréttin hefur verið uppfærð.
Holland Búlgaría Eurovision Eurovision 2027 Átök í Ísrael og Palestínu Tengdar fréttir Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Eurovision, evrópska söngvakeppnin, verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu 11. til 15. maí á næsta ári. Söngkonan Dara sigraði keppnina með lagið Bangaranga í maí í Vínarborg í maí á þessu ári. 13. ágúst 2026 09:13 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira
Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Eurovision, evrópska söngvakeppnin, verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu 11. til 15. maí á næsta ári. Söngkonan Dara sigraði keppnina með lagið Bangaranga í maí í Vínarborg í maí á þessu ári. 13. ágúst 2026 09:13