Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Birgir Olgeirsson skrifar 24. ágúst 2026 15:53 Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir breytingarnar eiga að skila fjölbreyttara pastaúrvali og lægra verði. Vísir/Ívar Fannar Bónus tekur pastahillurnar í gegn og hyggst bjóða fleiri tegundir í öllum verðflokkum. Barilla og Himneskt hverfa úr hillunum í bili en í staðinn koma meðal annars fleiri ódýrar tegundir, ítalskt úrvalspasta, lífrænt pasta, heilhveitipasta, glútenfrítt pasta og próteinpasta. „
Við erum að styrkja okkur í pastaflokknum, bæði í verðum og fjölbreytileika,“ segir Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónuss. Nýja úrvalinu verður skipt með skýrari hætti eftir verði og gæðum. Þar verður hægt að velja á milli ódýrra tegunda, pasta í miðlungsverðflokki og vandaðra vara í hæsta gæðaflokki. Salling verður áberandi í ódýrari hluta hillunnar. Hagar hófu innkaupasamstarf við danska smásölurisann Salling Group fyrr á árinu og boðuðu þá lægra verð á hundruðum vara í Bónus og Hagkaupum. Hagar sögðu í síðustu viku að vörur frá Salling hefðu að meðaltali komið í verslanir á rúmlega 15 prósentum lægra verði en sambærilegar vörur sem fyrir voru. Í mörgum tilvikum væri verðmunurinn enn meiri. Í dýrari enda pastahillunnar verður ítalska vörumerkið Garofalo. Bónus vill kynna það betur fyrir íslenskum neytendum sem úrvalsmerki en segir jafnframt hafa tekist að tryggja hagstætt verð á vörunum. „Því miður þurfa tvö vörumerki að fara og þess vegna hverfa Barilla og Himneskt í bili,“ segir Björgvin. Hann segir markmiðið þó að breikka pastaflokkinn og bjóða neytendum meira úrval en áður, hvort sem þeir leita að ódýru hversdagspasta, lífrænum vörum, próteinríkari valkosti eða ítölsku úrvalspasta.
Neytendur Verslun Pastaréttir Matur Matvöruverslun Mest lesið Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira