Formúla 1

Er annar hestur kominn í hlaupið um heims­meistara­titilinn?

Andri Broddason skrifar
Lando Norris er hógvær um hvort hann geti blandað sér í heimsmeistaraslaginn.
Lando Norris er hógvær um hvort hann geti blandað sér í heimsmeistaraslaginn. Anni Graf - Formula 1/ Getty Images

Eftir sigurinn í hollenska kappakstrinum í gær hefur Lando Norris unnið tvo kappakstra í röð í Formúlu 1. Ef McLaren-bíllinn heldur áfram að bæta sig gæti hann orðið mesti keppinautur Kimi Antonelli sem situr í efsta sæti heimsmeistaramótsins.

Miklar vangaveltur eru í gangi eftir hollenska kappaksturinn sem formlega byrjaði seinni helming tímabilsins í Formúlu 1. Nú hefur Lando Norris unnið tvær keppnir í röð sem gerir hann að einum sigurstranglegasta ökumanninum í næstu keppnum.

Lando Norris er ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1 og er sem stendur í fjórða sæti heimsmeistarmótsins með 159 stig. Tveir ökumenn eru jafnir í öðru sætinu en það eru fyrrverandi liðsfélagarnir Lewis Hamilton og George Russell. Russell keyrir fyrir Mercedes á meðan Hamilton er hjá Ferrari en þeir hafa báðir 24 stiga forskot á sjóðheitan Norris. Í efsta sætinu situr Kimi Antonelli, ökumaður Mercedes, 59 stigum fyrir ofan ökumennina í öðru sætinu.

Þrátt fyrir að Norris sé með 83 stiga bil í efsta sætið er nóg af stigum í pottinum til að saxa á ökumennina fyrir ofan. Á síðasta tímabili náði Max Verstappen að vinna upp stærra bil á Oscar Piastri í öðru sætinu þegar jafn mikið var eftir af tímabilinu.

Liðið þarf að halda áfram að bæta bílinn

Þó að það sé hægt að minnka bilið hægt og rólega þá á ekki að gera ráð fyrir því að Norris nái því. Hann sjálfur er raunsær og eftir að hafa orðið heimsmeistari á síðasta tímabili veit hann hvað hann þarf til að enda aftur í fyrsta sætinu.

„Ég veit að ég er búinn að vinna tvær keppnir í röð en þessa mínútuna get ég sagt að ég er ekki með bílinn til þess að berjast um heimsmeistaratitilinn,“ sagði Norris í viðtali eftir hollenska kappaksturinn.

„Ég er að sjá til þess að við sem lið slökum ekki á eða tökum því rólega á nokkurn hátt. Við höfum stærra verk að vinna en nokkru sinni fyrr, jafnvel meira en síðustu tvö ár sem við höfum orðið heimsmeistarar.“

McLaren-liðið hefur orðið heimsmeistari bílasmiða síðustu tvö ár en Mercedes er með afgerandi forystu á þessu tímabili. Mercedes er með 425 stig á meðan Ferrari er í öðru sætinu með 338. Í þriðja sætinu situr McLaren með 263 stig og því mikið sem liðið þarf að vinna upp til þess að ná þriðja heimsmeistaratitlinum í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×