Spá verðmætari bylgju nýrra lyfja á markað hjá Alvotech
Alvotech er að nálgast „mikilvægan vendipunkt“ eftir margra ára uppbyggingu þar sem áhersla fjárfesta færist frá eftirlitsáhættu tengdri FDA yfir í markaðssetningu nýrra lyfja og tekjuvöxt, að sögn greinenda Bank of America, sem mæla með kaupum í frumskýrslu sinni um félagið. Hlutabréfaverð Alvotech rauk upp í dag en greinendur bandaríska bankans telja að næsta bylgja nýrra hliðstæðulyfja frá félaginu geti reynst verðmætari en þau sem hafa áður komið á markað.
Tengdar fréttir
Telja vandræði keppinautar styrkja stöðu Alvotech á markaði með Simponi
Stjórnendur Alvotech telja félagið vel í stakk búið til að nýta sér þá stöðu sem komin er upp á markaði fyrir hliðstæður við gigtarlyfið Simponi í kjölfar vandræða kínverska keppinautarins Bio-Thera. Markaðshlutdeild hliðstæðulyfs Alvotech við Simponi er þegar komin yfir 15 prósent í Evrópu og félagið hefur byggt upp nægar birgðir til að mæta aukinni eftirspurn út árið og inn í 2027.
Bandarískur sjóður byggt upp um fimm prósenta stöðu í kjölfar útboðs Alvotech
Bandarískur sjóður, sem hefur einkum lagt áherslu á fjárfestingar í heilbrigðistengdum fyrirtækjum, hefur byggt upp stóra stöðu í Alvotech í kjölfar útboðs líftæknilyfjafélagsins og er núna þriðji stærsti hluthafinn með nærri fimm prósenta hlut. Tveir þekktustu vogunarsjóðsrisar í heimi voru jafnframt meðal fjárfesta sem keyptu drjúgan hluta þeirra bréfa sem Alvotech seldi í hlutafjáraukningu félagsins í byrjun sumars.
Vonast eftir aukinni veltu með innkomu yfir þrjátíu nýrra erlendra sjóða
Væntingar eru um að með innkomu meira en þrjátíu nýrra erlendra sjóða eftir nýlegt hlutafjárútboð Alvotech í Bandaríkjunum, margir með áherslu á líftæknigeirann, þá muni það auka veltu með bréfin og komnir séu að borðinu fjárfestar sem skilji betur verðmætin í lyfjapípu félagsins, að sögn Róberts Wessman. Hann fer hörðum orðum um regluverkið í kringum líftæknilyfjahliðstæður í Bandaríkjunum, sem er lakara borið saman við Evrópu, og segir að það geri stórum framleiðendum frumlyfja mögulegt að verja markaðshlutdeild sína mun lengur en eðlilegt megi teljast.