Körfubolti

Reese rífur í sig metin

Siggeir Ævarsson skrifar
Angel Reese rífur niður frákast
Angel Reese rífur niður frákast vísir/Getty

Angel Reese, leikmaður Atlanta Dream í WNBA, setti tvö frákastamet í leik Dream og Los Angeles Sparks í gær þegar hún reif niður 26 fráköst.

Reese sló þar með met Chamique Holdsclaw yfir flest fráköst í einum leik en met Holdsclaw hefur staðið frá árinu 2003, þegar hún tók 24 fráköst í einum og sama leiknum.

Þetta var þó ekki eina metið sem féll í leiknum en Reese hefur nú tekið alls 458 fráköst á tímabilinu, sjö fráköstum meira en A’ja Wilson tók árið 2024. Það verður að teljast ansi líklegt að Reese muni bæta metið nokkuð hressilega en enn eru sex leikir eftir af tímabilinu. 

Reese hefur verið nokkuð gagnrýnd fyrir lélega skotnýtingu undir körfunni og sumir gárungar kalla sóknarfráköstin hennar „mebounds“ sem er skammaryrði fyrir fráköst sem leikmenn taka eftir að hafa sjálfir klikkað. Í leiknum í gær tók Reese einmitt átta sóknarfráköst en hún hitti aðeins úr fjórum af 14 skotum sínum í leiknum.

Það verður þó ekki tekið af henni að hún er sannkölluð frákastavél og er væntanlega að fara að bæta metið yfir flest fráköst á einu tímabili nokkuð hressilega í næstu leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×