Handbolti

Guð­jón Valur fram­lengir við Gummersbach

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Guðjón Valur hefur verið þjálfari Gummersbach síðan 2020.
Guðjón Valur hefur verið þjálfari Gummersbach síðan 2020. vfl gummersbach

Guðjón Valur Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við þýska félagið Gummersbach til ársins 2029.

Samningur Guðjóns Vals átti að renna út á næsta ári og hann hafði verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá Kiel en ákvað að halda kyrru fyrir. Félagið tilkynnti um framlengdan samning í skemmtilegu myndbandi sem má sjá hér fyrir neðan. 

Guðjón Valur hefur verið þjálfari Gummersbach síðan hann lagði handboltaskóna á hilluna árið 2020.

Þá var liðið í B-deildinni en undir hans stjórn komst liðið upp í efstu deild og hann var kosinn þjálfari ársins á fyrsta tímabili.

Síðan hefur liðið fest sig í sessi sem eitt af bestu liðum deildarinnar og komist tvisvar í Evrópudeildina á síðustu þremur árum. Á síðasta tímabili hafnaði Gummersbach 4. sæti deildarinnar og Guðjón Valur var aftur kjörinn þjálfari ársins.

Landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson hefur verið leikmaður Gummersbach síðan 2020. FH-ingurinn Garðar Ingi Sindrason er nýgenginn til liðs við Gummersbach og mun spila með liðinu á næsta tímabili.

„Goggi hefur verið lykilmaður í að móta þróun félagsins okkar undanfarin sex ár,“ segir Cristoph Schindler, framkvæmdastjóri VFL Gummersbach.

„Hann er holdgervingur fagmennsku, ástríðu og alúðar í daglegu starfi. Á sama tíma samsamar hann sig fullkomlega með VFL, liðinu okkar og hugmyndafræði okkar. Sú staðreynd að við getum haldið þessu samstarfi áfram til langs tíma veitir okkur mikið skipulagsöryggi og sendir mikilvæg skilaboð bæði inn á við og út á við,“ bætti Schindler við.

„Ég er mjög ánægður og þakklátur fyrir það traust sem félagið hefur sýnt mér. Við höfum byggt mikið upp saman á undanförnum árum, en mér finnst samt að vegferð okkar sé hvergi nærri lokið,“ segir hinn 47 ára gamli Guðjón Valur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×