Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Andri Broddason skrifar 27. ágúst 2026 10:32 Ander Herrera hefur snúið aftur til Real Zaragoza og ætlar að gefa öll launin sín til baka. vísir/getty Ander Herrera, fyrrverandi leikmaður Manchester United og PSG, hefur ákveðið að fara til uppeldisfélagsins síns, Real Zaragoza á Spáni. Hann þarf ekki á launum að halda og ætlar að gefa þau aftur til félagsins.
Ander Herrera spilaði síðast með Boca Juniors í Argentínu en hefur nú snúið aftur á sína heimahaga þar sem hann ætlar að klára ferilinn. Hann hefur verið aðdáandi Real Zaragoza frá blautu barnsbeini en félaginu hefur ekki farnast vel síðustu ár. Þegar Herrera spilaði sína fyrstu leiki fyrir félagið var það í spænsku úrvalsdeildinni en tveimur árum eftir að hann fór frá félaginu var það dottið niður í B-deild Spánar. Real Zaragoza náði ekki að komast aftur upp í efstu deildina og endaði hvert tímabilið á fætur öðru neðar. Ander Herrera er líklegast að ganga til liðs við félagið á einum erfiðasta tíma félagsins en liðið er nú í spænsku C-deildinni. Herrera hefur því verk að vinna til að reyna að fá félagið til að enda ofar í deildinni. Erfið en sæt heimkoma Í viðtali við BBC Sport segist Herrera vera ánægður með að vera kominn aftur heim. „Þetta er staðurinn þar sem ég ólst upp, staðurinn sem gaf mér fyrsta tækifæri til að vera atvinnumaður. Ég vil nota gæðin mín, reynsluna mína og ástríðuna mína til að koma liðinu aftur á þann stað sem það á skilið að vera á.“ Félagið er í fjárhagsvandræðum og var Herrera tilbúinn að spila fyrir það frítt. Hann er búinn að eiga farsælan feril og hefur hugsað vel um sína peninga. „Ég er ekki að hugsa um peninga eða samninga. Ég er að gefa sjálfum mér gjöf, að fá að klæða mig í treyjuna. Mig langar að hjálpa félaginu mínu, liðinu mínu og borginni minni.“ Herrera byrjaði að vera aðdáandi félagsins þar sem pabbi hans var leikmaður liðsins. Þegar hann hætti svo sem leikmaður þá varð hann þjálfari liðsins. Hann hefur ekki ákveðið hvort að Ander Herrera feti í fótspor föður síns en hann útilokar það ekki.
Spænski boltinn Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Sjá meira