„Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Kjartan Kjartansson skrifar 27. ágúst 2026 13:07 Ratko Mladic árið 1993. Vísir/EPA Ratko Mladic, alræmdur fyrrverandi hershöfðingi Bosníuserba, er látinn. Hann hlaut lífstíðardóm fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi sem hann framdi í Bosníustríðinu á tíunda áratug síðustu aldar.
Serbnesk ríkissjónvarpsstöð greindi frá andláti Mladic í dag. Hann fékk heilablóðfall í apríl, að sögn norska dagblaðsins VG. Honum var hafnað um lausn úr fangelsi af heilsufarsástæðum í júlí í fyrra. Hann var 84 ára þegar hann lést. Mladic gekk undir viðurnefninu „bosníski slátrarinn“ vegna framgöngu hans í Bosníustríðinu sem geisaði frá 1992 til 1995. Alþjóðlegur dómstóll sakfelldi Mladic fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi árið 2017. Hans er sérstaklega minnst vegna fjöldamorðanna í Srebrenica árið 1995 þar sem um átta þúsund bosnískir múslimar, karlmenn og drengir, voru teknir af lífi. Einnig vegna umsátursins um Sarajevó sem kostaði um tíu þúsund manns lífið. Heforinginn lét sig hverfa og fór huldu höfði eftir að Slobodan Milosevic, forseti Serbíu í stríðinu og síðar Júgóslavíu, var handtekinn árið 2001. Mladic var sjálfur handsamaður í Serbíu árið 2011 og framseldur til stríðsglæpadómstólsins í Haag. Bosníustríðið var hluti af miklum stríðsátökum sem geisuðu á milli ólíkra þjóðarbrota á Balkanskaga þegar Júgóslavía leystist upp eftir fall kommúnismans. Ratko Mladic í dómsal í Haag árið 2021 þegar hann áfrýjaði lífstíðardómi sem hann hlaut fyrir voðaverk í Bosníustríðinu.AP/Oeter Dejong Mladic stýrði her Bosníuserba í stríðinu sem hófst eftir að Bosnía og Hersegóvína lýstu yfir sjálfstæði árið 1992. Hann naut stuðnings Milosevic, forseta Serbíu. Bosníuserber frömdu þjóðernishreinsanir á Bosníukróötum og bosnískum múslimum í stríðinu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bosnía og Hersegóvína Serbía Hernaður Erlend sakamál Andlát Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira