Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti Kristján Már Unnarsson skrifar 27. ágúst 2026 21:20 Siggeir Stefánsson er framleiðslustjóri Ísfélagsins á Þórshöfn. Egill Aðalsteinsson Makrílvertíðin stendur nú sem hæst og má búast við hún geti þetta sumarið skilað fimmtán til átján milljarða króna gjaldeyristekjum, þrátt fyrir verulega skertan kvóta. Á Langanesi eru menn stoltir af framlagi sínu til þjóðarbúsins.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá Sigurð VE, skip Ísfélagsins, koma inn til Þórshafnar eftir þrjátíu tíma siglingu úr Síldarsmugunni. Aflinn fékkst norðvestur af Álasundi, þétt við lögsögumörk Noregs. Í lestum skipsins eru 870 tonn af makríl, afli sem fer allur til vinnslu í húsum Ísfélagsins. Sigurður VE að leggjast að bryggju á Þórshöfn í gær. Í sjókældum lestunum eru 870 tonn af makríl.Egill Aðalsteinsson „Og ef makríllinn er góður, og ef við getum unnið hann í dýrustu pakkningar, þá mun þessi farmur skila í útflutningsverðmæti einhvers staðar svona 400-450 milljónum króna,“ segir Siggeir Stefánsson, framleiðslustjóri Ísfélagsins á Þórshöfn. Byrjað er á því að meta gæði makrílsins. Niðurstaðan er sú að hann líti mjög vel út og sé vel hæfur til manneldis. „Við vinnum allt saman mestmegnis í manneldi en eitthvað í bræðslu.“ Makríllinn rennur í gegnum tæknivædda uppsjávarvinnsluna sem flakar hann niður. Hér í sjónvarpsfrétt Sýnar spyrjum við: Afhverju borða Íslendingar ekki makríl? „Mjög góð spurning. Þetta er virkilega góður fiskur. Það er hægt að gera margt úr honum en þetta er einhvern veginn ekki hefðin okkar. Mjög góður. Það er sem sagt smá silungsbragð af honum,“ segir Siggeir. Vegna kvótaskerðingar, bæði vegna minni veiðiráðgjafar og nýlegs makrílsamnings, er kvóti íslenskra skipa í ár einungis þriðjungur af því sem var í fyrra og fjórðungur af því sem var árin þar á undan. „Og þetta er ekkert smámikið tap, miðað við árið í fyrra, fyrir okkar starfsmenn. Þetta telur í milljónum fyrir þá í lægri launum. Þetta minnkar tekjur hjá hafnarsjóði, sveitarfélagi, áhöfnum skipanna, fyrirtækinu og auðvitað þjóðarbúinu líka.“ Makríllinn kominn á færiböndin.Egill Aðalsteinsson Ný risastór frystigeymsla, sem tekin var í notkun á Þórshöfn í fyrrasumar, hjálpar þó til að hámarka verðmætin. „Við þurfum ekkert að ákveða núna hvort við seljum á Austur-Evrópu eða Kanada til dæmis, geymum hér og getum þá ákveðið það seinna og svo sent það.“ Bara frystigeymslan var tveggja milljarða króna fjárfesting en Ísfélagið hefur staðið fyrir mikilli uppbyggingu á þeim nítján árum sem liðin eru frá því það keypti Hraðfrystistöð Þórshafnar. Hin nýja frystigeymsla Ísfélagsins er stærsta byggingin á Þórshöfn.Egill Aðalsteinsson „Síðan hefur Ísfélagið fjárfest hér í bæði frystihúsi og bræðslu fyrir meira en tíu milljarða.“ Og hér eru menn stoltir af framlagi sínu til þjóðarbúsins. „Síðustu tuttugu árin þá hugsa ég að útflutningsverðmæti frá Þórshöfn sé um og yfir 150 milljarðar,“ segir framleiðslustjóri Ísfélagsins á Þórshöfn. Séð yfir höfnina og byggðina á Þórshöfn með Sigurð VE að sigla inn.Egill Aðalsteinsson
Makrílveiðar Langanesbyggð Ísfélagið Vestmannaeyjar Sjávarútvegur Sjávarréttir Matvælaframleiðsla Matur Tengdar fréttir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Hagsmunasamtök sjávarútvegsfyrirtækja finna samkomulagi um makrílveiðar sem íslensk stjórnvöld skrifuðu undir í morgun flest til foráttu. Þau saka utanríkisráðherra um að fórnar hagsmunum Íslands og færa grannþjóðum veruleg íslensk verðmæti „að ósekju“. 16. desember 2025 10:13 Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að prinsippum sem Íslendingar hafi alla tíð staðið fyrir hafi verið fórnað með samningi um makrílveiðar, sem íslensk stjórnvöld skrifuðu undir í morgun. Þá spyr hann hvort þingsköpum hafi verið kippt úr sambandi við gerð samningsins, þar sem fjárlaganefnd hafi ekkert veður fengið af honum fyrr en í morgun. 16. desember 2025 11:29 „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims segir veiðirétt íslensks sjávarútvegs á makríl samkvæmt nýju samkomulagi ekki langt frá vonum sínum. Viðbúið hafi verið að 16,5 prósent hlutur Íslands af heildarmakrílkvótanum væri ekki raunhæfur. 20. desember 2025 15:18 Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Fleiri fréttir Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Sjá meira
Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Hagsmunasamtök sjávarútvegsfyrirtækja finna samkomulagi um makrílveiðar sem íslensk stjórnvöld skrifuðu undir í morgun flest til foráttu. Þau saka utanríkisráðherra um að fórnar hagsmunum Íslands og færa grannþjóðum veruleg íslensk verðmæti „að ósekju“. 16. desember 2025 10:13
Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að prinsippum sem Íslendingar hafi alla tíð staðið fyrir hafi verið fórnað með samningi um makrílveiðar, sem íslensk stjórnvöld skrifuðu undir í morgun. Þá spyr hann hvort þingsköpum hafi verið kippt úr sambandi við gerð samningsins, þar sem fjárlaganefnd hafi ekkert veður fengið af honum fyrr en í morgun. 16. desember 2025 11:29
„Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims segir veiðirétt íslensks sjávarútvegs á makríl samkvæmt nýju samkomulagi ekki langt frá vonum sínum. Viðbúið hafi verið að 16,5 prósent hlutur Íslands af heildarmakrílkvótanum væri ekki raunhæfur. 20. desember 2025 15:18