Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar 28. ágúst 2026 08:52 Það má segja að það sé eitt jákvætt við þjóðaratkvæðagreiðsluna núna á laugardaginn. Þessi vegferð hefur fengið marga til að vega og meta stöðu Íslands, hvaðan við höfum komið í gegn um aldirnar og hvert við erum komin í dag. Fólk sest niður og metur stöðuna í dag og reynir að átta sig á hvaða stefna mun leiða okkur í “rétta” átt. Það er alltaf gott að fara yfir þessa hluti og ná að meta stöðuna eins og hún er í dag. Það er að minnsta kosti vonandi að sem flestir hafi nýtt þetta tækifæri til að íhuga stöðu lands og þjóðar í stóra samhenginu. Þetta hafa verið áhugaverðar vikur fram að atkvæðagreiðslunni og margt sagt og gert í baráttunni beggja vegna sem margir hafa eðlilega sett spurningamerki við. Það hefði verið óskandi að það hefði ekki orðið jafn mikil skautun í samfélaginu yfir sumartíman en það er auðvitað ákveðinn hluti af kosningabaráttu, það myndast lið og fólk fer fram með mismiklum hita í umræðunni. Það er margt sem ég hef við baráttu já sinna að athuga eins og misvísandi upplýsingar og bjögun staðreynda. Þetta hefur sýnt sig meðal annars í orðum þingmanna sem hafa sett fram fullyrðingar eins og lækkum vöruverðs um 25%, sen stenst ekki skoðun, að við séum þegar 75% í ESB, sem ekki er rétt og að við missum ekkert fullveldi þrátt fyrir staðreyndina um að við verðum að breyta stjórnarskrá til að heimila þetta mikla fullveldisframsal sem fylgir aðild að ESB. Ýmislegt hefur verið sett fram til að gera lítið úr afleiðingum þess að fara í þessa vegferð sem kostar milljarða, tíma og tækifæri. Já til að sjá hefur sett fram ýmis myndbönd þar sem að skoða í pakkann er sett í fagran búning án þess að setja nein rök fram. Í einu myndbandi já til að sjá líkja þau viðræðum við ESB eins og að máta peysu. Gallinn er þó sá að peysan er forljót og ermarnar eru allt of langar. Það reyndar kemur ekki í ljós fyrr en síðar að þessi peysa sem þau vilja að fólk máti er í raun spennitreyja, og um leið og við myndum ganga inn í sambandið eru hendurnar festar. Það er lítið mál fyrir fylkingarnar að stilla málunum upp með sínu ljósi hvert og svona auglýsingar sem gera lítið úr mikilvegi og þunga þessarar ákvörðunar eru ekki til þess fallnar að dýpka og auðga umræðuna og hvetja fólk til að setja sig inn í málin. Það hefur reyndar verið línan hjá já hliðinni allan tímann, að fólk þurfi nú ekki að kynna sér málin fyrir kosningarnar, jafnvel ráðherrar töluðu með þeim hætti í vor. Og af hverju ætli það sé? Svarið er auðvitað einfalt, þau vita sem er að ef að fólk kynnir sér raunverulega hvað ESB er og hvað gæti fylgt aðild að sambandinu þá verður það mun líklegra til að kjósa nei á laugardaginn. Ég hef þó mikla trú á íslenskri þjóð þegar kemur að þessu, það hafa verið fjölmargar greinar skrifaðar, mörg hlaðvörp og umræðuþættir þar sem vel hefur verið farið yfir þessi mál, það er vonandi að fólk hafi hlustað, lesið og kynnt sér málið til hlítar. Í allri þessari umræðu hefur þjóðarstoltið látið á sér kræla hjá manni. Í hvert skipti sem ég heyri já-liða tala niður Ísland og að við verðum að fara undir pilsfaldinn hjá ESB þá verður mér hugsað til þeirrar baráttu sem þjóðin háði í gegn um aldirnar við náttúruöflin og erfiðleika og tókst þrátt fyrir allt að lifa af. Mér verður hugsað til þeirra staðreyndar að Ísland er eitt ríkasta land í heimi. Mér verður hugsað til þess hversu stórbrotin stökk við höfum tekið á lýðveldistímanum til velsældar. Við erum mögnuð sem þjóð og höfum allt í hendi okkar að halda áfram á þeirri vegferð að byggja upp frábært land utan ESB. Ég er ekki tilbúinn í það mikla fullveldisframsal sem felst í inngöngu í ESB. Ég er ekki tilbúinn að binda hendur okkar inn í hnignandi sambandi þar sem tækifæri okkar eru nú þegar fullnýtt með EES aðild. Í upphafi skal endinn skoða, þetta á vel við hér, áður en fólk vill fara með okkur í þessa feigðarför sem fylgir aðild að ESB er gott að skoða málin og átta sig fyllilega hvað aðild að ESB þýðir í raun og veru. Þrátt fyrir þær miklu erjur sem hafa átt sér stað munum við halda áfram sameinuð, við setjum þennan ágreining til hliðar og vinnum saman að bjartri framtíð. Ef nei-ið verður ofan á er hægt að jarða þessa ESB umræðu til margra ára og hægt að einbeita sér að því að lagafæra og fínpússa það sem við þurfum að lagfæra í okkar frábæra samfélagi. Ég mun spila Ísland er land þitt áður en ég mæti á kjörstað. Þetta lag veitir manni innblástur og stolt yfir því að vera Íslendingur, það er góð áminning fyrir kosninguna. Við viljum eins og lagið lokar að „Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf“. Þetta eru ekki orðin tóm. Tryggjum að það sé áfram raunin og kjósum nei á laugardaginn. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun