Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason, Jón Páll Haraldsson, Kristín Jóhannesdóttir, Margrét Sverrisdóttir, Snædís Valsdóttir og Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifa 19. október 2026 06:31 Skýrleiki og samræmi krefjast vandaðs undirbúnings og samráðs. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lagt fram tillögur um breytt námsmat sem á að taka í notkun á þessu skólaári fyrir nemendur í tíunda bekk. Gert er ráð fyrir að aðrir árgangar fylgi í kjölfarið. Frá útgáfu aðalnámskrár árið 2012 og innleiðingu hæfnimiðaðs námsmats hefur ríkt ágreiningur um bókstafakvarðann. Skólafólk fékk ekki nægar leiðbeiningar um framkvæmdina, námsumsjónarkerfi reyndu að útfæra hana án skýrra fyrirmæla og foreldrar hafa í mörgum tilvikum átt erfitt með að skilja námsmatið og upplifað upplýsingaóreiðu. Markmið ráðuneytisins eru góðra gjalda verð og breytingunum er ætlað að svara ákalli samfélagsins um aukinn skýrleika og skýrari stefnu. Námsmat á að vera skýrt, réttlátt og sambærilegt milli skóla. Nemendur og foreldrar eiga að skilja hvernig það er uppbyggt og hvaða hæfni liggur að baki niðurstöðum þess. Skólastjórnendur hafa ríka hagsmuni af því að þessi markmið náist, enda bera þeir ábyrgð á framkvæmd námsmats og faglegu skólastarfi. Kvarðabreyting leysir ekki grundvallarvandann Skólamálanefnd Skólastjórafélags Íslands telur að breytingarnar sem nú eru lagðar fram styðji hvorki nægilega við faglegt skólastarf né tryggi aukinn skýrleika. Þær virðast að stórum hluta snúast um framsetningu einkunna, á meðan grundvallarspurningum um samræmi, réttmæti og gæði námsmats er enn ósvarað. Samkvæmt gildandi aðalnámskrá ber að meta hæfni nemenda. Það eitt að nota tölur í stað bókstafa við framsetningu námsmats eykur ekki þann skýrleika sem kallað er eftir. Ráðuneytið hefur ekki sýnt með sannfærandi hætti hvernig breyting úr bókstöfum í tölur muni tryggja aukið samræmi og betri upplýsingagjöf til nemenda og aðstandenda þeirra. Til þess þarf að huga að heildarskipulagi náms og þeim áherslum sem eiga að birtast í aðalnámskrá. Byrja þarf á grunninum í stað þess að bæta nýju lagi við kerfi sem þegar er kallað eftir að verði endurskoðað. Gæði námsmats ráðast ekki af þeim táknum sem notuð eru til að birta það Skólasamfélagið hefur um árabil þróað hæfnimiðað nám, leiðsagnarmat og fjölbreytta kennsluhætti. Sú krefjandi vegferð hefur skilað árangri en jafnframt sýnt að skapa þarf sameiginlegan skilning á hæfniviðmiðum, samræma framkvæmd og bæta upplýsingagjöf um námsmat. Námsmat á að gefa raunhæfa mynd af þekkingu, leikni og hæfni nemenda, hjálpa þeim að skilja framfarir sínar og sjá næstu skref. Það þarf því að ná til fjölbreyttrar hæfni, svo sem gagnrýninnar hugsunar, sköpunar, sjálfstæðis, samstarfs og getu til að leysa flókin viðfangsefni. Gæði námsmats ráðast jafnframt af því á hverju matið byggist og hvernig það er framkvæmt. Vandað námsmat krefst skýrra hæfniviðmiða, verkefna sem gefa nemendum raunhæf tækifæri til að sýna hæfni sína og fjölbreyttra gagna sem aflað er með samræmdum og gagnsæjum hætti. Gögnin þurfa að styðja þær ályktanir sem dregnar eru um nám og framfarir nemenda og niðurstöðurnar að vera nýttar á sanngjarnan og faglega ábyrgan hátt. Alþjóðleg viðmið um námsmat leggja því áherslu á réttmæti, áreiðanleika og sanngirni, auk skýrs samhengis milli tilgangs matsins, framkvæmdar þess og notkunar niðurstaðna (AERA, APA og NCME, 2014). Skýra þarf hvernig nýr einkunnakvarði styður þessa hugmyndafræði án þess að draga athygli frá hæfniviðmiðum og leiðsagnarmati. Árangur námsmats ræðst ekki af kvarðanum sjálfum heldur af gæðum upplýsinganna, fagmennsku kennara og því hvernig upplýsingarnar eru nýttar til að bæta nám. Óvissa og skortur á samráði grafa undan trausti Kennarar og skólastjórnendur hafa bent á skamman undirbúningstíma, óljós matsviðmið, mismunandi merkingu einkunna og skort á samræmingu milli skóla. Óvissan stafar því ekki aðeins af nýjum einkunnakvarða heldur einnig af því að breytingarnar hafa ekki verið mótaðar í skýru samhengi við markmið og inntak aðalnámskrár. Skólastjórafélag Íslands er fagfélag þeirra sem bera ábyrgð á faglegri forystu, þróun skólastarfs og framkvæmd stefnu stjórnvalda. Þekking og reynsla skólastjórnenda verður því að hafa vægi þegar ákvarðanir eru teknar um breytingar sem snerta nemendur, kennara og skólastarf. Raunverulegt samráð felst í að hlusta, vega fagleg rök og endurskoða ákvarðanir þegar rökin kalla á það. Þannig verður traust til. Skólasamfélagið þarf stöðugleika, skýra framtíðarsýn og svigrúm til markvissrar þróunar. Við viljum metnaðarfullar umbætur sem byggjast á rannsóknum, reynslu og faglegu samstarfi. Við viljum námsmat sem veitir nemendum raunhæfar upplýsingar og styður framfarir þeirra. Mennta- og barnamálaráðherra hefur nú tækifæri til að sýna að fagleg gagnrýni hafi raunverulegt vægi. Til þess þarf að staldra við, skýra matsviðmið, tryggja samræmda framkvæmd og eiga raunverulegt samráð við skólasamfélagið áður en breytingarnar taka gildi. Skólasamfélagið hefur varið árum í að þróa hæfnimiðað námsmat. Við umbætur verða stjórnvöld að sýna sömu þolinmæði og þau ætlast til af skólunum við innleiðingu þeirra. Einkunnakvarðanum má breyta aftur. Tækifærið til að vanda undirbúninginn er núna. Höfundar eru í meðlimir í Skólamálanefnd Skólastjórafélags Íslands Hjálmar Bogi Hafliðason, deildarstjóri Jón Páll Haraldsson, skólastjóri og varaformaður SÍ Kristín Jóhannesdóttir, sviðsstjóri Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri Snædís Valsdóttir, skólastjóri Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun