Golf

Um­deild aug­lýsing heldur á­fram að draga dilk á eftir sér

Aron Guðmundsson skrifar
Ekkert verður af samstarfi Good Good og PGA mótaraðarinnar í haust
Ekkert verður af samstarfi Good Good og PGA mótaraðarinnar í haust Vísir/Getty

Golfáhrifavaldarnir Good Good munu ekki vera einn af styrktaraðilum móts á PGA mótaröðinni í golfi eftir að afar umdeild auglýsing á vegum þeirra og Callaway kylfuframleiðandans fór í loftið.

Allar þessar vendingar eiga rætur sínar að rekja til auglýsingu fyrir nýjan Callaway-dræver sem var merktur Good Good. Í auglýsingunni sést Garret Clarck, forsprakki hópsins hrinda konu í jörðina þegar hún reynir að tæka dræverinn úr golfpoka. 

Skiljanlega urðu viðbrögðin við auglýsingunni sterk og ekki Good Good í hag. 

Afleiðingarnar fyrir Good Good hafa verið nokkrrar. Einhverjar verslanir ákváðu að taka varning golfáhrifavaldanna úr sölu og hafa afsökunarbeiðnir frá Good Good og Callaway á víxl verið sendar út. 

Callaway hefur ákveðið að ljúka samstarfi sínu við Good Good og nú hafa áhrifavaldarnir ákveðið að stíga til hliðar sem einn af styrktaraðilum móts á PGA mótaröðinni sem fer fram í haus í Texas. 

Good Good greindi frá ákvörðuninni í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×