Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar 28. ágúst 2026 21:02 Vilt þú veita stjórnvöldum þitt umboð? Atkvæðagreiðslan um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið er stór ákvörðun. Hún snýst um framtíð Íslands. Hún snýst um hvort við viljum stíga skref í átt að grundvallarbreytingu á stjórnskipan landsins og því hvar ákvörðunarvald okkar liggur. Það sest engin þjóð að samningaborði um aðild að Evrópusambandinu af forvitni einni saman. Tilgangur aðildarviðræðna er að ná samkomulagi um skilyrði mögulegrar aðildar með umfangsmiklu aðildarferli. Ef þú kýst JÁ, þá ertu að veita ríkisstjórninni þitt umboð til að fara fyrir Íslands hönd að samningaborðinu og hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það er stór ákvörðun. Ef þú vilt ekki að Ísland gangi í Evrópusambandið, þá segir þú NEI. Ef þú vilt að ákvörðunarvald um íslensk málefni færist ekki lengra frá íslenskum kjósendum, þá segir þú NEI. Ef þú vilt áfram fullt frelsi til að ákveða hvernig við nýtum auðlindir landsins, þá segir þú NEI. Ef þú vilt að Ísland varðveiti frelsi sitt til að móta eigin leið til framtíðar, þá segir þú NEI. Allt tal um að kjósa bara ,,já til sjá" gerir að mínu mati lítið úr mikilvægi þeirrar ákvörðunar sem við stöndum frammi fyrir. Þetta er ekki skoðanakönnun. Þetta er ekki forvitnisferð. Þetta er spurning um hvort þú viljir veita ríkisstjórninni þitt umboð til að hefja aðildarviðræður fyrir Íslands hönd. Sjálf vil ég ekki veita stjórnvöldum mitt umboð og segi NEI. Höfundur er lögfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigþrúður Ármann Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Vilt þú veita stjórnvöldum þitt umboð? Atkvæðagreiðslan um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið er stór ákvörðun. Hún snýst um framtíð Íslands. Hún snýst um hvort við viljum stíga skref í átt að grundvallarbreytingu á stjórnskipan landsins og því hvar ákvörðunarvald okkar liggur. Það sest engin þjóð að samningaborði um aðild að Evrópusambandinu af forvitni einni saman. Tilgangur aðildarviðræðna er að ná samkomulagi um skilyrði mögulegrar aðildar með umfangsmiklu aðildarferli. Ef þú kýst JÁ, þá ertu að veita ríkisstjórninni þitt umboð til að fara fyrir Íslands hönd að samningaborðinu og hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það er stór ákvörðun. Ef þú vilt ekki að Ísland gangi í Evrópusambandið, þá segir þú NEI. Ef þú vilt að ákvörðunarvald um íslensk málefni færist ekki lengra frá íslenskum kjósendum, þá segir þú NEI. Ef þú vilt áfram fullt frelsi til að ákveða hvernig við nýtum auðlindir landsins, þá segir þú NEI. Ef þú vilt að Ísland varðveiti frelsi sitt til að móta eigin leið til framtíðar, þá segir þú NEI. Allt tal um að kjósa bara ,,já til sjá" gerir að mínu mati lítið úr mikilvægi þeirrar ákvörðunar sem við stöndum frammi fyrir. Þetta er ekki skoðanakönnun. Þetta er ekki forvitnisferð. Þetta er spurning um hvort þú viljir veita ríkisstjórninni þitt umboð til að hefja aðildarviðræður fyrir Íslands hönd. Sjálf vil ég ekki veita stjórnvöldum mitt umboð og segi NEI. Höfundur er lögfræðingur
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar