Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 28. ágúst 2026 21:56 Ragnar Árnason, til vinstri, og Hannes Hólmsteinn Gissurarson, til hægri, prófessorar emeriti stóðu að viðburðinum. Vísir/Samsett Tveir fyrrverandi prófessorar við Háskóla Íslands hótuðu skólanum skaðabótakröfu og kvörtun til umboðsmanns Alþingis eftir að ákveðið var að fyrirlestur Carls Baudenbacher fengi ekki að fara fram í Hátíðarsal Háskólans.
Í samskiptum þeirra við skólann var jafnframt ýjað að því að ákvörðunin kynni að brjóta gegn stjórnarskrá og stjórnsýslulögum. Þá sagði annar þeirra ásakanir Háskólans um villandi upplýsingagjöf geta varðað lög um meiðyrði. Þetta kemur fram í tölvupóstum sem miðillinn Gímaldið fékk afhenta frá Háskóla Íslands og fjallar um í ítarlegri grein. Fjölmargar stofnanir sagðar standa að fyrirlestrinum Um er að ræða Hannes Hólmstein Gissurarson og Ragnar Árnason, prófessora emeriti við HÍ. Þeir mótmæltu báðir ákvörðun skólans um að meina Baudenbacher að flytja fyrirlestur á vegum Áfram Ísland í Hátíðarsalnum og vísaði til húsreglna salarins. Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, hélt fyrirlesturinn að lokum í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll 10. ágúst. Í svari hennar, sem Gímaldið birtir úr, kemur fram að Háskólinn hafi talið forsendur bókunarinnar brostnar eftir að fundurinn var auglýstur undir merkjum Áfram Ísland og Almenna bókafélagsins. Samkvæmt reglum Háskólans er Hátíðarsalurinn ekki ætlaður viðburðum á vegum utanaðkomandi samtaka. „Hefðu réttar upplýsingar legið fyrir hefði salurinn ekki verið leigður út með þessum hætti,“ sagði í svari rektors. Skipuleggjendum var hins vegar boðið að halda fundinn í Öskju eða öðrum sal innan Háskólans. Gímaldið hefur greinir jafnframt frá því að í samskiptum vegna bókunarinnar væri vísað til aðkomu Lagadeildar og Hagfræðideildar HÍ, þó að hvorug deildin hefði staðið að fundinum. Félagsvísindastofnun kom heldur ekki að skipulagningu hans. Varðaði siðareglur, lög um meiðyrði, stjórnarskrá og stjórnsýslulög í senn Í tölvupósti sem Hannes Hólmsteinn sendi skrifstofustjóra rektorsskrifstofu 6. ágúst mótmælti hann ákvörðun Háskólans. „Ég áskil mér fyllsta rétt í þessu máli og minni á, að Háskólinn kann að vera skaðabótaskyldur og það er ekki um litlar fjárhæðir,“ skrifaði Hannes. Hann hafnaði jafnframt því að villandi upplýsingar hefðu verið gefnar um aðstandendur fundarins og sagði slíkar ásakanir geta varðað við siðareglur Háskólans og, „að breyttu breytanda“, lög um meiðyrði. Daginn eftir sendi lögmaður Ragnars rektor HÍ bréf þar sem þess var krafist að bókun Hátíðarsalarins yrði staðfest. Þar var því haldið fram að bindandi leigusamningur hefði komist á og síðan verið riftur. Yrði kröfunni ekki sinnt áskildi Ragnar sér rétt til að krefjast skaðabóta, meðal annars vegna auglýsinga- og undirbúningskostnaðar. Þá var það sagt að málinu kynni að verða beint til stjórnar Háskólans og umboðsmanns Alþingis. „Þér hafið kosið að beita valdi yðar í samræmi við yðar sýn“ Eftir að rektor hafði hafnað því að ákvörðunin fæli í sér ritskoðun eða skerðingu á akademísku frelsi svaraði Ragnar henni og þéraði hana. „Virðulegi rektor. Þakka þetta svarbréf. Ljóst er að við sjáum þetta mál mismunandi augum og þér hafið kosið að beita valdi yðar í samræmi við yðar sýn. Vonandi verður sú ákvörðun Háskólanum ekki til óheilla,“ skrifaði Ragnar. Baudenbacher hafði sjálfur einnig samband við rektor að morgni fundardags og lýsti áhyggjum af ákvörðuninni. Silja Bára áréttaði í svari sínu að honum hefði ekki verið meinað að flytja fyrirlestur innan Háskólans, þvert á móti væri það heiður, og ákvörðunin aðeins varðað Hátíðarsalinn.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Háskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira