Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Lovísa Arnardóttir skrifar 31. ágúst 2026 07:43 Frá björgunaraðgerðum í gær. Vísir/AP Í það minnsta átta eru látin og 18 er saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur í gær. Alls voru 270 farþegar um borð í ferjunni sem hvolfdi við strendur eyjunnar þar sem Tyrkir hafa yfirráð.
Skipstjórinn og sjö áhafnarmeðlimir eru í haldi lögreglunnar á meðan málið er til rannsóknar samkvæmt vef BBC. Ferjan var að sigla frá Kyrenia til Mercin í Tyrklandi. Kyrenia er vinsæll sumarleyfisstaður og ferjan var ein margra sem sigla á hverjum degi á milli Kýpur og Tyrklands. Haft er eftir Ünal Üstel , forsætisráðherra svæðisins, í frétt Guardian að hann hafi sagt svæðismiðlinum TRT að búið væri að bjarga 237 manns og að verið væri að leita þeirra sem er saknað. „Björgunarsveitir hafa skipulagt ítarlega leit til að finna þau,“ sagði Tufan Erhürman, leiðtogi í Tyrklandi, og ef fólk væri enn inni í ferjunni þá væri ekki auðvelt að nálgast það. Það væri verið að reyna það með ákveðinni tækni. Töluverður viðbúnaður var á vettvangi en fjögur skip frá strandgæslunni og farþegaskip voru send á vettvang, auk fimm tyrkneskra strandgæsluskipa og tveggja þyrlna, að sögn yfirvalda á svæðinu. Sokkin á botn Ferjan hefur samkvæmt frétt Guardian sokkið alveg niður á botn, um 514 metra. Mehmet Harmancı, bæjarstjóri Nicosia, segir þetta verstu hörmungar sem þau hafa upplifað allt frá því að svæðisstjórn lýsti yfir sjálfstæði. „Við höfum aldrei séð neitt þessu líkt áður. Þetta er langversta hörmung sem við höfum upplifað. Enn er 23 einstaklinga saknað. Við teljum að flestir farþeganna hafi verið Tyrkir og tyrkneskir Kýpverjar,“ sagði hann við The Guardian. Bæjarstjóri Kyrenia, Murat Şenkul, sagði að ferjan væri í eigu fyrirtækisins Filo Denizcilik og hefði sokkið undan Diana-ströndinni. Hún hefði byrjað að taka inn sjó um 7,5 kílómetrum undan ströndinni, að því er TRT greindi frá. Myndskeið frá vettvangi sýndu fólk í björgunarvestum fljótandi í sjónum í kringum ferjuna sem hafði oltið. Þegar skipið valt héldu farþegar sér í skrokk þess. Kýpverska ríkisútvarpið greindi frá því að báturinn væri nýr og að þegar hann byrjaði að taka inn sjó, um fjórar mílur undan ströndinni, hefði skipstjórinn sagt farþegum að setja á sig björgunarvesti. Vinsæll ferðamáti Í frétt Guardian er haft eftir heimildarmanni að ferjan hafi verið vinsæll ferðamáti milli meginlandsins og eyjarinnar meðal Tyrkja sem starfa í norðurhluta Kýpur. „Það er mun ódýrara að taka ferjuna en flug og ferðin tekur aðeins nokkrar klukkustundir. Margir tyrkneskir ríkisborgarar nota hana til að ferðast og hitta fjölskyldur sínar heima,“ sagði embættismaður, sem vildi ekki láta nafns síns getið. „Það má segja að margir farþeganna hafi verið fátækir. Þetta er allt saman afskaplega sorglegt.“
Kýpur Tyrkland Björgunarsveitir Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira