Norðausturland fær loks langþráðan veg Kristján Már Unnarsson skrifar 1. september 2026 12:12 Sigurbergur Konráðsson er verkstjóri Skútabergs í vegagerðinni á Brekknaheiði. Egill Aðalsteinsson Íbúar Norðausturlands sjá fram á þáttaskil í samgöngumálum með nýjum uppbyggðum vegi yfir Brekknaheiði. Með vegagerðinni þvert yfir Langanes, milli Þórshafnar og Bakkafjarðar, fæst samfellt slitlag um Norðurausturveg sem skapar áhugaverðari valkost í ferðalögum um norðausturhorn landsins.
Í kvöldfréttum Sýnar var fjallað um veginn milli Þórshafnar og Bakkafjarðar en sveitarfélögin voru sameinuð árið 2006. Þá varð til Langanesbyggð og núna loksins tuttugu árum síðar er að koma uppbyggður vegur með bundnu slitlagi milli byggðanna. Auk betri tengingar innan héraðs skapast hér áhugaverðari valkostur á ferðalögum um norðausturhorn landsins; í stað þess að aka hringveginn hefðbundna um Möðrudalsöræfi að fara beinan og breiðan veg um strandbyggðirnar norðaustanlands. Norðausturleiðin um strandbyggðirnar verður áhugaverðari valkostur þegar vegurinn verður tilbúinn. Tíu manna vinnuflokkur verktakafyrirtækisins Skútabergs frá Akureyri hóf verkið í fyrrasumar en tilboð þess hljóðaði upp á 862 milljónir króna, eða 93,5 prósent af kostnaðaráætlun. Verkstjórinn Sigurbergur Konráðsson segir heimamenn hafa lengi beðið eftir þessum vegarbótum. „Eins og elstu menn tala þá eru nokkrir áratugir síðan var farið að strika þessa veglínu. Og hún er loksins að koma núna, þrjátíu til fjörutíu ár síðan, held ég,“ segir Sigurbergur. Hlassið sturtað í nýja veginn.Egill Aðalsteinsson Nýi kaflinn yfir Brekknaheiði er 7,6 kílómetra langur og liggur hæst í 408 metra hæð yfir sjávarmáli. En eru verktakarnir að vinna þarna allt árið og yfir háveturinn líka? „Það var nú smá stopp í vetur í einhverja tvo mánuði. En það var góður vetur framan af. Þetta er svolítið erfitt veðursvæði hérna, mikil úrkoma og ísing og raki.“ -Og kannski geta gerst stórviðri hér að vetri? „Já, já, það verður hvasst hérna.“ Gamli vegurinn til vinstri. Nýi vegurinn til hægri. Þórshöfn sést fjær.Egill Aðalsteinsson Núverandi veglínu er aðeins fylgt á stuttum kafla, í Vatnadal upp úr Gunnólfsvík, en annars liggur nýja leiðin að mestu í nýju vegstæði. „Ég hugsa að hann verði nú betri upp á snjó heldur en gamli vegurinn. Hann er meira uppbyggður úr landinu,“ segir verkstjórinn. Vegamótin við Þórshöfn færast um 150 metra til suðurs og fjær húsunum.Egill Aðalsteinsson Næst Þórshöfn færast vegamótin örlítið sunnar, um 150 metrum fjær byggðinni. Ásamt veðrinu hefur helsta áskorunin verið að vinna gott grjót í fyllingarefni. „Við vinnum námurnar með sprengingum og kannski svona svolítið umrót í lausu efni til að komast í bestu klappirnar.“ Í jarðvegsnámunni. Grafa mokar efni á trukk.Egill Aðalsteinsson Þeir vinna frá klukkan átta á morgnana til sjö á kvöldin. Megnið af undirlagi, segir Sigurbergur, er komið út í vegstæðið og byrjað sé á yfirborðsfrágangi og segir hann verkið á áætlun. -Og hvenær ætlið þið svo að klára? „Ja, næsta sumar í ágúst,“ svarar Sigurbergur Konráðsson, verkstjóri Skútabergs á Brekknaheiði, hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Langanesbyggð Vegagerð Samgöngumál Samgönguáætlun Byggðamál Vopnafjörður Norðurþing Tengdar fréttir Vegabætur taldar auka straum ferðafólks um Norðausturland Þáttaskil eru framundan í vegamálum Norðausturlands. Vegagerðin bauð í dag út stórt verk sem felur í sér að síðasti malarkaflinn á norðausturhringnum fær bundið slitlag. Vegabæturnar eru taldar geta aukið straum ferðamanna um byggðir norðausturhornsins. 18. febrúar 2025 21:32 Þjóðvegarykið að hverfa af norðausturhringnum Íbúar norðausturhornsins fagna um þessar mundir stórum áfanga í lagningu bundins slitlags um Langanesströnd milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Núna vantar malbik á aðeins sex kílómetra bút til að klára norðausturhringinn. 21. ágúst 2021 23:15 Norðausturhringurinn lagður bundnu slitlagi Átak hefst í sumar við að byggja upp þjóðveginn um Langanesbyggð, milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Sveitarstjórinn segir þetta mjög ánægjulegar vegarbætur. 8. febrúar 2019 20:30 Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Fleiri fréttir Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Sjá meira
Vegabætur taldar auka straum ferðafólks um Norðausturland Þáttaskil eru framundan í vegamálum Norðausturlands. Vegagerðin bauð í dag út stórt verk sem felur í sér að síðasti malarkaflinn á norðausturhringnum fær bundið slitlag. Vegabæturnar eru taldar geta aukið straum ferðamanna um byggðir norðausturhornsins. 18. febrúar 2025 21:32
Þjóðvegarykið að hverfa af norðausturhringnum Íbúar norðausturhornsins fagna um þessar mundir stórum áfanga í lagningu bundins slitlags um Langanesströnd milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Núna vantar malbik á aðeins sex kílómetra bút til að klára norðausturhringinn. 21. ágúst 2021 23:15
Norðausturhringurinn lagður bundnu slitlagi Átak hefst í sumar við að byggja upp þjóðveginn um Langanesbyggð, milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Sveitarstjórinn segir þetta mjög ánægjulegar vegarbætur. 8. febrúar 2019 20:30