Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Valur Páll Eiríksson skrifar 1. september 2026 12:44 Heimir Gunnlaugsson er formaður knattspyrnudeildar Víkings. Stjórnin harmar skemmdarverkin vesturfrá. Stjórn knattspyrnudeildar Víkings harmar skemmdarverk sem unnin voru á Meistaravöllum, heimavelli KR, í aðdraganda leiks liðanna í Bestu deild karla í fótbolta síðdegis.
Allsherjar skemmdarverk blöstu við starfsfólki KR þegar það mætti vestur í bæ til vinnu í morgun. Málningu hafði verið dreift víða um stúkuna, Vikes málað á einn vegg hennar, og einnig málað á varamannaskýli félagsins. Starfsfólk KR hefur unnið að þrifum í allan morgun þar sem Pálmi Rafn Pálmason, framkvæmdastjóri félagsins, hefur meðal annars reynt að þrífa burt rauða málningu úr stúkunni. Stjórn knattspyrnudeildar Víkings kveðst harma uppákomuna, að hún sé ekki í samræmi við það sem Víkingar standi fyrir og að fulltrúar Víkings hafi haft samband við KR-inga strax í morgun og boðið fram aðstoð við þrif. Yfirlýsinguna má sjá að neðan. Yfirlýsing knattspyrnudeildar Víkings Stjórn knattspyrnudeildar Víkings harmar þau skemmdarverk sem unnin voru á heimavelli KR síðastliðinn sólarhring. Slík háttsemi er ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir. Knattspyrnudeild Víkings hafði strax og okkur varð kunnugt um málið samband við KR og var boðin fram aðstoð við þrif á vellinum. Að takast á, æsa upp í mótherjanum og láta skot flakka tilheyrir allt saman leiknum en skemmdarverk eru aldrei liðin. Með vinsemd og virðingu, Stjórn knattspyrnudeildar Víkings
Besta deild karla KR Víkingur Reykjavík Íslenski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira