Viðskipti innlent

Skrif­stofa NetApp á Ís­landi lögð niður

Kjartan Kjartansson skrifar
NetApp er fjölþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í gagnageymslu og skýþjónustu. Íslenska skrifstofan vann að þróunar- og rannsóknarmálum.
NetApp er fjölþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í gagnageymslu og skýþjónustu. Íslenska skrifstofan vann að þróunar- og rannsóknarmálum. Vísir/Getty

Framtíð á áttunda tugs starfsmanna hugbúnaðarfyrirtækisins NetApp á Íslandi er óljós eftir að ákveðið var að leggja niður starfsemina hér á landi. Starfsfólki var tilkynnt um þetta í gær.

Um fimmtíu forritarar hafa starfað hjá NetApp samkvæmt heimildum Vísis.

Hrönn Guðmundsdóttir, stjórnarformaður NetApp á Íslandi, vildi ekki tjá sig um breytingarnar og vísaði á almannatengslasvið móðurfélagsins í Bandaríkjunum. Fyrirspurn til þess hafði ekki verið svarað þegar þessi frétt birtist.

NetApp á Íslandi er dótturfélag NetApp BV í Hollandi sem aftur er dótturfélag NetApp í Bandaríkjunum. Samkvæmt ársreikningi félagsins frá því í apríl í fyrra stöfuðu níutíu manns að meðaltali fyrir fyrirtækið frá 1. maí 2024 til 30. apríl 2025.

Hagnaður NetApp á Íslandi nam rúmum 600 milljónum króna og eigið fé tæpum 1,9 milljörðum í lok apríl í fyrra.

Starfsemi íslenska félagsins fólst í að rannsaka, þróa og markaðssetja hugbúnað fyrir NetApp eins og Azure NetApp Files og Google Cloud NetApp Volumes.


Tengdar fréttir

Stefna Jóni Þorgrími vegna Rauða heftarans

Bandaríska félagið NetApp Inc. hefur höfðað mál gegn Jóni Þorgrími Stefánssyni, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins á Íslandi. Hann er sakaður um að hafa stolið hugverki NetApp og notað það til að undirbúa rekstur í samkeppni við NetApp á meðan hann var enn í vinnu hjá fyrirtækinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×