Viðskipti erlent

ChatGPT virkar á ný

Bjarki Sigurðsson skrifar
Líkanið lá ekki niðri hjá öllum.
Líkanið lá ekki niðri hjá öllum. Getty/Matteo Della Torre

Truflanir voru á nokkrum þjónustum gervigreindarrisans OpenAI, þar á meðal á hinu geysivinsæla spjalllíkani ChatGPT. Tugþúsunda tilkynntu um truflanir og bárust fréttastofu ábendingar frá fólki hérlendis um að þjónustan hefði legið niðri.

Í tilkynningu á bilanavef OpenAI segir að þeim hafa borist fleiri tilkynningar um bilanir en venjulega frá notendum ChatGPT og Codex. Starfsmenn telji sig hafa fundið lausn á málinu og fylgjast með gangi mála.

Rétt er að taka fram að líkanið lá ekki niðri hjá öllum. Til að mynda fengust skilaboðin hér fyrir neðan þegar blaðamaður spurði það sjálfur hvort það lægi niðri. 

Skilaboðin sem fengust.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×