Formúla 1

Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“

Aron Guðmundsson skrifar
Vettel á góðar minningar og sterka tengingu við Michael Schumacher vin sinn úr Formúlu 1
Vettel á góðar minningar og sterka tengingu við Michael Schumacher vin sinn úr Formúlu 1 Vísir/Samsett

Fjórfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Sebastian Vettel komst við er hann ræddi Michael Schumacher eftir að hafa ekið sögufrægum bíl Ferrari sem Þjóðverjinn gerði magnaða hluti með tímabilið 2002 í mótaröðinni.

Það var um nýliðna keppnishelgi Formúlu 1 á Monza sem viðstaddir fengu að fylgjast með Vettel aka þessum sögufræga bíl Ferrari nokkra hringi um Monza en um helgina var Schumacher heiðraður á margvíslegan hátt. 

Þjóðverjinn, sem er af mörgum talinn besti ökuþór Formúlu 1 frá upphafi og vann sjö heimsmeistaratitla á sínum ferli, lenti í alvarlegu skíðaslysi árið 2013 og hefur síðan þá lítið verið gefið út um líðan hans. Schumacher hlaut alvarlega höfuðáverka.

Vettel ók sjálfur fyrir Ferrari á sínum tíma og var góður vinur Schumacher. Það tók því á fyrir hann, tilfinningalega séð, að fá að aka Ferrari bílnum um helgina. 

Vettel með sögufrægum bílum Ferrari á MonzaVísir/Getty

„Það er mjög erfitt að finna réttu orðin til þess að lýsa þessu,“ sagði Vettel í klæðnaði þar sem að á stóð: „Fyrir vin minn Michael. Það er enn keppni til þess að vinna.“

Vettel sagði hljóðið í Ferrari bílnum hafa rifjað upp margar minningar. Flestar þeirra tengdi hann við Schumacher.

„Tengingin við Michael, vin minn sem við söknum öll. Ég mun lifa á þessari upplifun lengi. Hann hefur veitt mér svo mikinn innblástur. Verið mikill stuðningsmaður og ég er þakklátur fyrir vináttu okkar. Ég sakna hans. Sakna þess að hringja í hann og tala saman um lífið. Við urðum mjög nánir undir lok hans ferils og fórum að tala um þýðingarmikla hluti.“

„Ég vil trúa því og trúi því að andi hans hafi verið með mér í bílnum í dag.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×